Fréttir - 06.01.2009 |

Kirkjuþegnar í Myanmar aðstoða við að ýta drekkhlöðnum vörubíl sem notaður er við að dreifa hjálpargögnum til fórnarlamba fellibyls, eftir að hann festist í blautri mold.
Jarðskjálftar í Alþýðulýðveldinu Kína,. Fellibyljir í Myanmar. Flóð í Hong Kong.
Aðstoð við stórfelldar náttúruhamfarir á þessum svæðum fyrir utan hinn hefðbunda áframhaldandi rekstur góðgerðamála kirkjunnar hefur gert árið 2008 að mjög annasömu ári hjá velferðarleiðtogum á Asíusvæðinu.
Einnig hafa þessir atburðir veitt eftirminnilega og nána, jafnvel persónulega, reynslu fyrir Síðari daga heilagra sem búa nálgæðum svæðum.
Eftir jarðskjálftann í Sichuan, Kína, þann 12. maí sem er versti jarðskjálfi síðustu þrjátíu ára er olli 70.000 dauðsföllum og skildi eftir um 4.8 milljón heimilislausa, gátu leiðtogar Asíusvæðisins hjálpað svæðisbundnum kirkjuþegnum til að sjá og jafnvel taka þátt í hjálparstarfi kirkjunnar.
Bréf voru send til kirkjueininga í Taiwan og Hong Kong þar sem kirkjuþegnar voru beðnir um að gefa í mannúðarsjóð kirkjunnar. Þeim pening var safnað saman ásamt peningum frá hinum heilögu annars staðar úr heiminum.
„Hugmyndin var að kirkjuþegnar okkar (í Asíu) fengu að sjá hvað við værum að gera,“ sagði Öldungur Anthony D. Perkins einn af hinum Sjötíu og fyrsti ráðgjafi í forsætisráði Asíusvæðisins. „Hér í Asíu höfum við ekki þann lúxus að hafa niðursuðuverksmiðju og velferðar búgarða og að veita slíka þjónustu fyrir kirkjuþegna.“
Og í staðinn gat kirkjan sýnt kirkjuþegnum hvert sjóðurinn fór og hvernig framlag þeirra var notað í hjálparstarfinu. Á tæpum tveimur vikum var ávísun uppá eina milljón kínveskra RMB (um það bil 17.5 milljónir króna) – peningur sem kirkjuþegnar höfðu gefið – framvísuð leiðtogum Rauða krossins í Sichuan og stjórnvöldum þar.
Þegar komið var fram á mitt sumar hafði samtals 5.000 tjöldum, 1.500 hjólastjólum, 3.000 göngugrindum og 10.000 „viðurværis pökkum“ (sem innihalda teppi, mat, vatn og aðrar lífnauðsynjar) verið dreift til nauðstaddra.
Öll tjöld og allir pakkar voru merktir með LDS Charities merkinu – „LDS“ var með enska fangamerkinu og „Charities“ var skrifað með kínverskum stöfum.
Strax og jarðskjálfinn hafði riðið yfir þann 12. maí staðfestu leiðtogar kirkjunnar að í lagi væri með alla kirkjuþegna á svæðinu – þar með talið sjálfboðaliðana frá BYU sem voru í China Teachers Program og hóp frá BYU. Innan við sólarhrings, gátu velferðarleiðtogar Asíusvæðisins útvegað tjöld fyrir þá kirkjuþegna sem ekki gátu snúið til síns heima, sagði Öldungur Stanley Wan, framkvæmdastjóri LDS Charities á Asíusvæðinu og svæðisvaldhafi sjötíu.
Innan við tveim vikum síðar ferðuðust 600 kirkjuþegnar, sem aðallega voru af kínverskum uppruna, frá Hong Kong til Shenzhen, í Guangdon héraði sem er í suður Kína, til þess að aðstoða við dreifingu á hjálpargögnum.
Kirkjuþegnarnir frá Hong Kong notuðu þáverandi vegabréfsáritanir eða þurftu að útvega sér nýjar áritanir til þess að komast inn í meginland Kína og þurftu að verðast á eigin vegum til landamæra Hong Kong og Kína. Þar sá kirkjan um að útvega rútur sem flutti fólkið í aðstöðu sem hafði verið komið upp í verksmiðju sem er í eigu Bruce Lai, kirkjuþegns í Hong Kong, þar sem kirkjuþegnarnir settu saman viðurværis pakkana.
Yfirmenn velferðardeildar kirkjunnar gátu útvegað tjöldin sem uppá vantaði frá tveimur af sínum birgjum, annar þeirra breytti pöntun frá bandarískum viðskiptavini sínum og sendi tjöldin í staðinn á neyðarsvæðið í Kína.
Framtakið í Shenzen „hjálpaði ekki einungis þeim sem á aðstoð þurftu að halda heldur jók einnig trú kirkjuþegnana sem komu til að sjá og hjálpa,“ sagði Öldungur Wan, sem vitnaði í einn kirkjuþegn sem sagði: „Þessar aðgerðir hafa haft mestu áhrifin á mig í öllu mínu kirkju lífi.“
A. Terry Oaks, framkvæmdastjóri velferðarmála á Asíusvæðinu sagði að áframhaldandi aðstoð er enn veitt á svæðinu þar sem kirkjan sendir lyf og aðföng tengd skólastarfsemi. „Allir skólarnir þarna eyðulögðust,“ sagði hann.
Kirkjan heldur áfram að vinna með staðar yfirvöldum og nokkrum stórum ríkishópum í Kína – þar á meðal Hjálparstofnun Kína og Kvenfélagi Kína – við að veita hjólastóla og göngugrindur sem gefnar hafa verið, meðferð vegna asma, verknáms þjálfun og annarra mála.