Fréttir - 12.03.2008 |
Einn mesti styrkur hjálparstarfs Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu — þjálfun fólks á heilbrigðissviði við endurlífgun nýbura eftir súrefnisskort við fæðingu — hefur leitt til þess að lífum yfir 400.000 ungbarna hefur verið bjargað í þróunarlöndunum.
Þjálfun í endurlífgun nýburaer eitt meginviðfangsefnið sem hjálparstarf kirkjunnar beinist að. Önnu viðfangsefni eru vatnsöflun, hjólastóladreifing og augnaðgerðaþjálfun.
Samkvæmt Hjálparstofnun kirkjunnar var endurlífgunartækni nýbura –námskeið sem haldin eru til að fræða fagfólk á heilbrigðis- og fæðingasviði um hvernig hægt er að fækka ungbarnadauða af súrefnisskorti –kennd í 23 löndum árið 2007.
Á sex mánaða tímabili á síðastliðnu ári var 176 manns kennd endurlifgunartækni nýbura í Úkraínu einni.
„Sé einn læknir þjálfaður, getur hann eða hún haldið áfram að þjálfa aðra, sem verður til þess þegar fram í sækir að þúsundir mannslífa bjargast,“ sagði Dean Walker, framkvæmdastjóri stærri viðfangsefna Hjálparstofnunarinnar.
Verkefni hjálparstarfsins fara að mestu fram í sjálfboðastarfi. Í tilviki endurlífgunartækni nýbura, yfirgefa læknar, hjúkrunarfólk og annað heilbrigðisfólk þæglegar aðstæður til að þjálfa í öðrum löndum.
Í lok ársins 2007 sýndu tölur Hjálparstofnunarinnar miklar framfarir á nokkrum svæðum þar sem lögð var áhersla á fleira en björgun nýbura við fæðingu.
• 950.000 manns nutu góðs af verkefnum tengdum öflun hreins vatns.
• 60.537 hjólastólum var dreift.
• 9.100 manns nutu góðs af augnaðgerðum.
Í lok ársins 2007 leiddi skoðun Hjálparstofnunarinnar í ljós að líknarverkefni kirkjunnar í þágu þeirra sem urðu fyrir flóðbylgjunni miklu árið 2004 voru enn í fullum gangi.
Í fyrstu vikunni sem flóðbylgjan skall á Indónesíu, Srí Lanka, Indlandi og Taílandi, gaf kirkjan neyðarbirgðir af vatni, matvælum, heilsupökkum, líkamspokum, ábreiðum og fatnaði og dreifði þeim á þau svæði sem verst urðu úti.
Mormónar um allan heim brugðust við, líkt og fleiri annarra trúarbragða, með því að gefa peninga til líknarverkefna til handa fórnarlömbum fjóðbylgjunnar. Kirkjan tók höndum saman með fjórum öðrum samtökum: International Organization of Migration, Islamic Relief, Adventist Development and Relief Agency og International Relief and Development
Kirkjan aðstoðaði við byggingu 16 skóla, 902 heimila og 3ja samfélagsmiðstöðva. Fórnarlömbum var gefinn nýr tækjabúnaður, svo sem saumavélar og fiskveiðibátar, til að sjá fólkinu fyrir atvinnu. Sjúkrahúsum var gefinn læknabúnaður og skólum voru gefnar tölvur.
Neyðarviðbrögð kirkjunnar eftir fjóðbylgjuna fólust í því að uppfylla brýnustu þarfir fórnarlambanna. Fyrir utan matvæla- og læknisbirgðir, beindist langtímaáætlunin að sjálfsbjörgun: Að sjá þeim sem af komust fyrir hráefni til að byggja upp líf sitt og nauðsynlegri hæfni til sjálfsnægtar.