Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 19.06.2010

 

Hjálparhendur í Slóveníu

Ljósmyndir: Dora Glassford

Meðlimir og trúboðar um allt landið í Slóveníu tóku sig saman um hreinsunarverkefni, 17. apríl 2010, undir merkjum Hjálparhanda Mormóna.

Meðlimir í öllum þremur greinunum í Ljubljana voru eftirvæntingarfullir að taka þátt í hreinsunarverkefni víða um Slóveníu. Meðlimir í Ljubljana-grein komu saman hinn 17. apríl með meðlimum í Maribor-grein og Celje-grein til að leggja sitt af mörkum í dagsþjónustu í átakshreinsun í Sóveníu.

Undirbúningur hófst fyrir nokkrum mánuðum er skipuleggjendur buðu heimastjórn og almenningi að taka þátt í að staðsetja svæði víða um Slóveníu þar sem fólk vildi losa sig við óæskilegt rusl. 

Kirkjan bauð fram víðtækan stuðning, þar á meðal trúboðanna og trúboðsforsetans Davids H. Hill. Þar sem þeir eru aðeins fáir að tölu, gengu meðlimir í Maribor-grein og Celje-grein til liðs við þá.

Meðlimum í Ljubljana-grein var falið að hreinsa stórt svæði á hæðinni Hill Roznik, aftan við borgargarðinn Tivoli, sem er vinsæll staður meðal ungra sem aldinna, er hafa unun af útiveru og rölta um á skemmtilega hönnuðum skógarstígum. Skokkarar og gangandi vegfarendur skilja stundum eftir flöskur, munnþurrkur og tómar dósir meðfram þessum fallegu stígum. 

Hæðin er nærri Ljubljana-samkomuhúsinu. Um 35 meðlimir og trúboðar, ásamt Hill forseta og Evan T. Haglund greinarforseta og fjölskyldu hans, komu saman í samkomuhúsinu. Íklædd gulu vestunum sínum, héldu þau upp hæðina þar sem skipuleggjendur sáu þeim fyrir hönskum og litríkum plastpokum til að safna allskyns rusli og flokka það.

Meðlimum og trúboðum fannst verkefnið hressandi, er þau hlógu og unnu saman. Mörgum pokum með ýmsu rusli var safnað saman og þeir skildir eftir á ákveðnu svæði þar sem sorpumenn tóku þá sorpubílum. 

Um 250.000 manns komu að þessu verkefni víða um Slóveníu á þessum þjónustudegi. Skipuleggjendur héldu skemmtanir í þremur borgum um kvöldið með vinsælum slóvenskum tónlistarmönnum.

Meðlimir í hinni fámennu Celje-grein komu saman nærri leikhúsi bæjarins, kl. 9 fyrir hádegi, til að fá fyrirmæli um framvindi þjónustudagsins. Áhugasamir og Íklæddir vestum Hjálparhanda Mormóna tóku þeir á móti stórum svörtum plastpokum og hönskum. Þeir voru sendir að flóðgarði nærri bæjargarðinum, að svæði sem hafði að geyma óheimila ruslahauga. 

Meðlimir tóku þegar til við verkið. Úr moldugum jarðveginum dróu þeir upp reiðhjól, flöskur og annað rusl. Meðlimirnir skiptu sér í hópa og dreifðu sér um tiltölulega stórt svæði. Trúboðar og meðlimir voru samtals um 20. Á tveimur klukkustundum var fjöldi stórra plastpoka fylltur og þeim hent í gám til að fara með á nærliggjandi sorphauga.  Mikið var hlegið meðan unnið var. Meðlimum til óvæntrar ánægju komu konur frá líknarfélögum með kökur og vatn til þeirra.

Þegar verkið við flóðgarðinn var lokið fóru meðlimir til bókasafnsins í Celje, en þar voru höfuðstöðvar verkefnisins. Skipuleggjendur báðu um fleiri sjálfboðaliða til að fara að Heracles-musterinu, í garð þar sem hreinsa þurfti upp aðra óheimila ruslahauga.  Þeir fundu þar gömul bílsæti og annað rusl.

Meðlimir í Celje-grein fundu til mikillar samheldni og afreksgleði eftir verkefnið. Þeir fundu líka til mikillar ánægju að hafa hjálpað til við að fegra bæinn sinn og sveitina. Verkefnið varð til að efla vináttu þeirra og skapa góðar minningar og skapa góðar gagnkvæmar tilfinningar á milli íbúa og leiðtoga bæjarins.