Fréttir - 14.12.2009 |

Öldungur Neil L. Andersen fundaði með svæðisleiðtogum og svæðishöfum Sjötíu í Suður-Afríku. Fremri röð frá vinstri: Öldungar Craig A. Cardon, Donald L. Hallstrom, Neil L. Andersen, Keith B. McMullin biskup og Paul E. Koelliker. Aftari röð frá vinstri: Öldungar Dale G. Renlund, Richard K. Ahadjie, Hesbon O. Usi, Deblan O. Madu, Adesina J. Olukanni, Freebody A. Mensah, Garith C. Hill, Alexander A. Odume, Bolin H. Brickness, Norbet K. Ounleu, Kapumba T. Kola og F. Michael Watson.

Öldungur Neil L. Andersen og eiginkona hans, Kathy Andersen, verja tíma með ungum og einhleypum kirkjuþegnum í kirkjunni að lokinni kvöldvöku í Accra, Ghana.

Öldungur og systir Andersen með Idyo Raymond Egbo forseta og eiginkonu hans, Comfort Ikip Ese Egbo. Egbo er trúboðsforsetinn í Nígeríu Calabar trúboðinu.

Öldungur og systir Andersen heimsækja Alexander K. Baidoo, biskup Christiansborg deildar, Accra Ghana Christiansborg stiku, eiginkonu hans, Ernestina, og fjölskyldu.

Öldungur og systir Hallstrom með Prince Oti Ankrah, stikuforseta Accra Ghana Christiansborg stiku,eiginkonu hans, Bernice, og fjölskyldu.
Consolata Usi og nokkur af börnunum hennar fimm voru að ganga eftir vegi í Kenía dag einn árið 1992 þegar hún rakst á mormóna trúboða. Þeir hófu að tala við hana um hið endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists. Þrátt fyrir áhuga á því sem þeir höfðu að segja þá bað hún trúboðana að heimsækja sig síðar þegar eiginmaður hennar væri kominn heim því hann var að heiman vegna vinnu sinnar.
„Þegar ég kom heim hitti ég trúboðana sem fjölskyldan mín hafði verið að tala um,“ sagði öldungur Hesbon O. Usi. „Ég vildi sjá hvernig þeir tilbáðu og fór því í kirkju með þeim. Frá þeim tíma sem ég kom fyrst í kirkjuna vöknuðu spurningar. Ég fékk það á tilfinninguna að þessi kirkja væri öðruvísi og því lærði ég meira.“
Eftir því sem Usi fjölskyldan lærði meira um Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu því meiri trúskipting átti sér stað. Stuttu síðar, í janúar 1993, skírðust bróðir og systir Usi sem og börn þeirra sem voru nægilega gömul til að skírast. Fjórum mánuðum síðar var bróðir Usi kallaður sem greinarforseti og þjónaði hann sem slíkur næstu sjö árin.
„Kallanir hafa verið hluti af lífi okkar,“ segir hann. „Þegar við meðtökum kallanir – hvaða köllun sem er frá þjóni Drottins – þá gerum við það af alhug og við gerum okkar besta. Við lítum ekki á kallanir sem sjálfsagðan hlut.“
Öldungur Usi þjónar nú, tæpum 17 árum eftir skírn sína, sem svæðishafi Sjötíu í Nairobi í Kenýa. Öldungur Usi veit að þjónusta við Drottin er besta leiðin til að verja tíma sínum, hvort sem það er í köllun greinarforseta eða svæðishafa Sjötíu.
Öldungur Neil L. Andersen úr Tólfpostulasveitinni og eiginkona hans, systir Kathy Andersen, ásamt öldungi Donald L. Hallstrom, úr forsætisráði hinna Sjötíu, og eiginkonu hans, systir Diane Hallstrom heimsóttu öldung Usi og aðra leiðtoga og kirkjuþegna í nýlegri ferð sinni til Suður-Afríku og Ghana. Er þetta í fyrsta skiptið sem öldungur Andersen heimsækir Afríku. „Þetta var mjög góð reynsla,“ sagði öldungur Andersen við Church News. „Hönd Drottins á hlut að máli í þessum löndum og kirkjan vex og dafnar.“
Þar sem mormóna kirkjan er enn að slíta barnskónum í mörgum löndum í Afríku eru margir leiðtogar, eins og öldungur Usi, fyrstu eða annarar kynslóðar trúskiptingar. Það eru 10 svæðishafar Sjötíu frá sex löndum sem þjóna í heimsálfunni Afríku.
Á meðan heimsókn postulans stóð yfir þurftu margir staðarleiðtogar að ferðast langar vegalengdir til þess að sækja fund með nokkrum af meðlimum fimmtu sveitar hinna Sjötíu sem haldinn var í Jóhannesarborg. Allir svæðishafar Sjötíu í Afríku voru viðstaddir ásamt svæðisforsætisráði Suðaustur-Afríku – öldungur Paul E. Koelliker, forseti; öldungur F. Michael Watson, fyrsti ráðgjafi og öldungur Elder Dale G. Renlund, annar ráðgjafi – og öldungur Craig A. Cardon, forseti Vestur-Afríku svæðisins ásamt Keith B. McMullin öðrum ráðgjafa í Yfirbiskupsráðinu.
„Það var dásamlega reynsla að tala við postula augliti til auglitis í heimilislegum aðstæðum,“ sagði öldungur Usi. „Það var hvatning að sjá og heyra frá postula Drottins sem kennir á þann hátt sem þú getur skilið.“
Það var ekki einungis persónulega kennslan sem var eftirminnileg fyrir öldung Usi heldur var það einnig sameinandi reynsla að funda með hinum Sjötíu í Afríku.
„Eitt af því sem maður upplifir er bræðralag,“ sagði öldungur Usi. „Margir af þessum mönnum eru fyrstu eða annarar kynslóðar trúskiptingar með mismunandi bakgrunn sem koma saman til að vinna að og byggja upp kirkjuna. … Það var mikil eining í prestdæminu þegar við hittumst og miðluðum af reynslu okkar. Við urðum sem ein heild og styrktum hvern annan.“
Gordon B. Hinckley forseti greindi frá nýrri köllun, svæðisvaldhafi Sjötíu, í Aðalráðstefnu í apríl 1997 sem hjálpa átti við að uppfylla þarfir alheimskirkju og hafði þessi köllun það mikilvæga hlutverk að boða fagnaðarerindið og þjóna innan þess. Köllun þessi ber nú heitið svæðishafi Sjötíu og eru sveitir hinna Sjötíu átta talsins. Þeir sem þjóna í Afríku tilheyra þriðju sveit hinna Sjötíu.
„Hlutverk svæðishafa Sjötíu er að vinna undir stjórn Tólfpostulasveitarinnar að uppbyggingu og stjórnun erinda kirkjunnar meðal allra þjóða,“ sagði öldungur Hallstrom. „Tólfpostulasveitin á að fá hina Sjötíu til þess að aðstoða við að boða og þjóna í fagnaðarerindinu.“
Fjölgun sveita hinna Sjötíu á sér stað er kirkjan heldur áfram að vaxa. Köllun svæðishafa Sjötíu í Afríku endurspeglar vöxt kirkjunnar í þeim heimshluta.
„Leiðtogar þessir hafa frábærar sögur að segja,“ sagði öldungur Andersen. „Bara það að setjast niður og ræða við þá um þær áskoranir sem þeir eru að fást við var mjög hrífandi.“
Á dagskrá öldungs Andersen og öldungs Hallstrom var einnig að flytja erindi á kvöldvöku í Accra í Ghana sem rúmlega 450 ungmenni sóttu. Þeir áttu einnig fund með mörgum biskupum, stikuforsetum og trúboðsforsetum.
„Við áttum fund með öllum biskupum og öllum stikuforsetum í sex stikum sem eru nærri Jóhannesarborg,“ sagði öldungur Andersen. „Að sjá kirkjuna blómstra … er falleg sjón.“
Hann talaði um ótrúleg trúskipti staðfastra kirkjuþegna og áhrif sem þjónusta þeirra hefur haft á vöxt kirkjunnar.
„Við heimsóttum nokkra kirkjuþegna á heimilum þeirra,“ sagði öldungur Andersen. „Okkur þótti mikið til um andríki fjölskyldna þeirra. Þau eru andlegt og réttlátt fólk og við munum sjá kirkjuna vaxa og dafna í þessum löndum.“