Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 28.01.2008

 

Gordon B. Hinckley forseti deyr 97 ára

Gordon B. Hinckley forseti í viðtali hjá Larry King árið 1998.

Gordon B. Hinckley forseti, sem í tólf ár hefur stjórnað Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í heimsútrás hennar, er látinn 97 ára gamall.  Jarðaför hans mun fara fram laugardaginn 2. febrúar og verða sýnd í gegnum gervihnött kl. 18 að íslenskum tíma.

Hinckley forseti var fimmtándi forseti í 177 ára sögu kirkjunnar og hefur þjónað henni sem slíkur frá 12. mars 1995.
   
Forseti kirkjunnar lést 27. janúar sl. á heimili sínu af völdum elli.  Þess er ekki vænst að Tólfpostularáðið velji eftirmann Hinckleys forseta fyrr en að útför hans lokinni á næstu dögum. 

Hinckley forseti var jafnvel á 97. aldursári kunnur sem hinn óþreytandi leiðtogi, sem alltaf skilaði fullum vinnudegi á skrifstofunni og ferðaðist afar mikið um heim allan til að blanda geði við þegna kirkjunnar, sem nú eru fleiri en 13 milljónir meðal 160 þjóða.

Hann var einn af ástkærustu nútíma kirkjuleiðtogum sökum visku sinnar, kímni og mikillar ræðusnilli.   Hann var afar andlega þenkjandi maður og var því mjög áhugasamur um sögu og kryddaði oft ræður sínar með frásögnum af frumbyggjum kirkjunnar.

Hann var eftirsóttur meðal fjölmiðlafólks og kom fram í fréttaþættinum „60 Mínútum,“ með Mike Wallace og á sjónvarpsstöðinni CNN í þættinum „Larry King Live,“ ásamt því að hafa komið fram í hundruðum fréttblaða og tímarita í gegnum árin. Meðan á Ólympíuleikunum 2002 stóð í Salt Lake varð beiðni hans um að kirkjan yrði ekki með trúboð meðal gesta til þess að fjölmiðlar virtu það við hann og leiddi til þess að kirkjan naut mikils velvilja á þessum alþjóðlegu leikum. 

Á umliðnum árum hefur drift og stefnufesta Hinckleys forseta endurspeglast í fjölmörgum yfirgripsmiklum verkefnum kirkjunnar. Þessi forseti kirkjunnar tilkynnti að eitt hundrað musteri skyldu verða starfrækt í lok árs 2000 og fól kirkjunni því að takast á við gríðarmikla áætlun um byggingu mustera.

Árið 1999 – 169 árum eftir að kirkjan var stofnuð af Joseph Smith – voru 56 musteri starfrækt í kirkjunni. Þremur árum síðar hafði sá fjöldi tvöfaldast, aðallega vegna þess að smærri og hagkvæmari musteri voru hönnuð, sem varð til að þessar helgu byggingar urðu aðgengilegar kirkjuþegnum í fjarlægari löndum heims.  Mun fleiri þegnar kirkjunnar geta nú tekið þátt í þeim helgiathöfnum sem aðeins eru framkvæmdar í musterum, þ.m.t. eilíft hjónaband og innsiglun fjölskyldna sem eilífra eininga.

Hinckley forseti var víðförlasti forsetinn í sögu kirkjunnar. Af skyldurækni hefur hann farið margsinnis umhverfis heiminn til að koma meðal Síðari daga heilagra í yfir 60 löndum. Hann var fyrsti forseti kirkjunnar til að ferðast til Spánar, þar sem hann tók skóflustungu að musteri í Madrid árið 1996, og til Afríkulandanna Nígeríu, Gana, Keníu, Simbabve og Grænhöfðaeyja, en þar var hann meðal þúsunda Síðari daga heilagra árið 1998.
   
Á aðalráðstefnu kirkjuþegna í apríl 2001, tilkynnti Hinckley forseti um stofnun Menntunarsjóðsins – metnaðarfullrar áætlunar um að hjálpa ungum þegnum kirkjunnar (aðallega heimkomnum trúboðum frá þróunarríkjunum) að afla sér aukinnar menntunar og atvinnuþjálfunar, meðal þjóða þar sem þau að öðrum kosti hefði að öllum líkindum ekki átt tækifæri á slíku.  
   
Hinckley forseti tilkynnti árið 1996 um byggingu nýrrar ráðstefnuhallar, ekki fjarri heimili hans í Salt Lake City, og fjórum árum síðar vígði hann hana. Byggingin tekur 21.000 manns í sæti og talið er að engin önnur bygging í heimi, þessarar tegundar, geti tekið svo marga í sæti, og hún er nú miðstöð fyrir boðskap kirkjunnar til heimsins, sem sendur er út á 54 tungumálum.

Áður en Hinckley varð forseti kirkjunnar, hafi hann innt af hendi yfirgripsmikla þjónustu í 14 ár sem ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, sem fer með yfirstjórn kirkjunnar, og í 20 ár þar á undan þjónaði hann sem meðlimur í Tólfpostulasveitinni.

Hinckley forseti fæddist 23. júní 1910, í Salt Lake City, þeim Bryant Stringham og Ada Bitner Hinckley. Einn af forfeðrum hans, Stephen Hopkins, kom til Bandaríkjanna á skipinu Mayflower. Annar forfaðir hans, Thomas Hinckley, þjónaði sem fylkisstjóri Plymouth Colony frá 1680 til 1692.

Fyrsta starf Hinckleys forseta var blaðberastarf á Deseret News, dagblaði í Salt Lake City. Eftir að hann hafði lokið almennu námi í Salt Lake City, ávann hann sér háskólagráðu í Utah-háskólanum í listum og þjónaði þessu næst í trúboði fyrir kirkjuna í Stóra Bretlandi.  Hann þjónaði þar með sóma og að því kom að hann var tilnefndur aðstoðarmaður eins postula kirkjunnar, sem var í forsæti alls Evróputrúboðsins. 

Þegar hann hafði með góðum árangri lokið trúboði sínu á miðjum fjórða áratug tuttugustu aldarinnar, bað Heber J. Grant forseti kirkjunnar hann um að koma á fót því sem nú er Almannanefnd kirkjunnar.

Hinckley forseti hóf þjónustu sína í Aðalnefnd sunnudagaskólans árið 1937, tveimur árum eftir að hann kom heim frá trúboðsþjónustu sinni í Stóra Bretlandi. Hann hafði yfirumsjá með öllum tengslum kirkjunnar við almenning. Árið 1951 var hann tilnefndur sem framkvæmdaritari Aðalnefndar trúboðs kirkjunnar, sem sér um framkvæmd alls trúboðs kirkjunnar, og þar þjónaði hann í sjö ár.

Hinn 6. apríl 1958, er Hinckley þjónaði sem forseti Austur–Millcreek stikunnar í Salt Lake City (stika er líkt og biskupsdæmi), var hann tilnefndur sem aðalvaldhafi eða sem yfirmaður kirkjunnar í fullu starfi. Sem slíkur þjónaði hann sem aðstoðarmaður postulanna tólf eða allt þar til hann var tilnefndur í sveit postulanna tólf, hinn 5. október 1961,

Hinckley forseti hefur hlotið fjölda heiðursviðurkenninga er tengjast menntun og fræðslu, þ.m.t. Distinguished Citizen Award frá Southern Utah-háskólanum; Distinguished Alumni Award frá Utah-háskólanum og heiðursdoktorsgráður frá Westminster-framhaldsskólanum, Utah State-háskólanum, Utah-háskólanum, Brigham Young-háskólanum, Southern Utah-háskólanum, Utah Valley State-framhaldsskólanum og Salt Lake Community-framhaldsskólanum. Námssviðinu The Gordon B. Hinckley Endowment for British Studies, var komið á fót í Utah-háskólanum, sem tekur mið af listum, bókmenntum og sögu Bretlands.

Hinckley forseti hlaut viðurkenninguna Silver Buffalo Award frá skátafélaginu Boy Scouts of America. Hann var heiðraður af National Conference of Community and Justice (fyrrverandi National Conference of Christians and Jews) fyrir að leggja sitt af mörkum til umburðarlyndis og skilnings í heiminum og hann hlaut viðurkenninguna Distinguished Service Award frá National Association for the Advancement of Colored People.
   
Í mars 2000 ávarpaði Hinckley forseti National Press Club in Washington, D.C. Hann hefur einnig ávarpað Religion Newswriters Association, U.S. Conference of Mayors og tvisvar hefur hann ávarpað Los Angeles World Affairs Council.

Hinckley forseti hefur skrifað nokkrar bækur og fjölda kennslubóka, bæklinga og handrita, þ.m.t. bókina Standing for Something, sem var söluhæst og ætluð almenningi. Í henni hampar hann dyggðum eins og elsku, heiðarleika, siðsemi, háttsemi, lærdómi, fyrirgefningu, meðaumkun, vinnusemi, þakklæti, bjartsýni og trú. Hann ber einnig vitni um það sem hann nefnir „verði dyggðarinnar,“ sem eru hið hefðbundna hjónaband og hin hefðbundna fjölskyldu.

Hinckley forseti giftist Majorie Pay í Salt Lake–musterinu 1937.  Þau áttu 5 börn, 25 barnabörn og 38 barnabarnabörn.  Systir Hinckley lést 6. apríl 2004.