Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 26.12.2007

 

Gleðileg hátíð vonar og umhyggju

Ráðstefnuhöllin var fallega skreytt í tilefni jólanna og karlar og konur Laufskálakórsins sungu á jólasamkomu Æðsta forsætisráðsins.

Gordon B. Hinckley forseti benti á hinn 2. desember að orðið „gleðileg“ í orðatiltækinu „gleðileg jól“ væri ekki það besta tiltæka, heldur væri hugsanlega meira viðeigandi að segja: „Jólin eru komin. Hvað get ég gert til að hjálpa þér? Eru byrðar þínar of þungar? Er sorg þín sár?“

Forseti kirkjunnar lét orð þessi falla í ávarpi sínu á jólasamkomu Æðsta forsætisráðsins sem haldin var í Ráðstefnuhöllinni. Ráðgjafar hans í Æðsta forsætisráðinu, Thomas S. Monson forseti og Henry B. Eyring forseti fluttu einnig ávörp.

Laufskálakór mormóna og Hljómsveit Musteristorgsins fluttu hátíðartónlist í fallegri umgjörð prýddri rauðu, grænu og gyltu jólaskrauti og jólastjörnur þöktu umgjörð ræðustólsins.

Craig Jessop og Mack Wilberg stjórnuðu kórnum til skiptis og Andrew E. Unsworth lék á orgelið. Sungnir voru jólasálmarnir „Wexford Carol,“ „One December Bright and Clear,“ „Still, Still, Still“ og „How Far Is It to Bethlehem?“ ásamt hinum alþekktu jólasálmum „Ljós heimsins“ og „Heims um ból“ og söfnuðurinn tók undir í þriðja versi síðari sálmsins.

„Veröldin er yfirfull af sorgmæddu fólki,“ sagði Hinckley forseti. Margt af því er niðurbrotið. Það er veikt. Það er gleðisnautt. Því finnst lífið tilgangslaust. Jafnvel á þessum jólum er það þjakað af þessum tilfinningum.“

Hann benti á björtu hliðina og sagði birtu skína af ímynd barnsins í Betlehem. „Það er ímynd jóla góðra vona. Þar finnum við hin spámannlegu orð Jesaja:  „Því að barn er oss fætt, sonur er oss gefinn. Á hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla. Nafn hans skal kallað Undraráðgjafi, Guðhetja, Eilífðarfaðir, Friðarhöfðingi“ (Jes 9:6).

Hinckley forseti vitnaði í frásögnina í 2. kafla Lúkasar um fæðingu Jesúbarnsins og jólasálminn „Fagna þú veröld.“  „Öll gleðjumst við í anda þessara jóla,“ sagði hann. „Tilvera okkar fær aukinn ljóma. Við verðum óeigingjarnari og gjafmildari. Enginn annar tími ársins nær að breyta okkur jafn mikið.“

Hann sagði: „Ég hef staðið á ökrum fjárhirða á dimmri nóttu og horft á ljós Betlehems í fjarska. Mig hefur langað til að hefja upp raust með hinum himneska herskara sem söng fyrsta jólakvöldið, sem lýsti yfir þeim dýrðlega atburði, fæðingu sonar Guðs, frelsara heimsins.“

Hinckley forseti lauk með því að segja: „Megi blessun himins hvíla yfir ykkur. Megi andi Drottins uppljóma hjörtu okkar. Megi kærleikur okkar aukast á þessum jólum.
Og, kæru bræður og systur, megi andi barnsins í Betlehem fylla hjörtu okkar  friði og kærleika.“

Öldungur Sheldon F. Child, af hinum Sjötíu, flutti inngangsbæn og systir Elaine S. Dalton, fyrsti ráðgjafi í aðalforsætisráði Stúlknafélagsins flutti lokabæn.