Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 10.07.2009

 

Fyrsta samkomuhúsið í Króatíu

Nýja samkomuhúsið í Zagreb er fyrsta bygging kirkjunnar í Króatíu en 30 ár eru síðan kirkjan var skipulögð í landinu. Þetta nýja samkomuhús er byggt í nútíma hluta borgarinnar.Hin háa tignalega bygging er áhrifamikið tákn viðurvistar kirkjunnar.

Öldungur D. Todd Christofferson og eiginkona hans, Katherine, eru hér með Sladjan Mihajlovic, umdæmisforseta Beograd Serbia umdæmisins, og eiginkonu hans, Marija, fyrir utan nýuppgerða íbúð í miðbæ Belgrade sem þjónar sem samkomusalur.

Öldungur D. Todd Christofferson í Tólfpostulasveitinni vígði samkomuhús í Zegreb í Króatíu, á meðan hann var á ferðalagi í fimm löndum fyrrverandi Júgóslavíu.  Hér er um að ræða fyrsta samkomuhúsið í Króatíu og hið annað í þessum fyrrverandi löndum Júgóslavíu.

Samkomuhúsið var vígt þann 24. maí á meðan tveggja daga umdæmisráðstefna stóð yfir í Zegreb. Á ráðstefnunni las öldungur Christofferson bréf frá Thomas S. Monson forseta, sem vígði landið fyrir predikun fagnaðarerindisins árið 1985. Í bréfinu segir Monson forseti frá reynslu sinni fyrir 24 árum og tjáir ást sína og velþóknun á öllu því sem gert hefur verið fyrir kirkjuna í Króatíu. Hann óskaði meðlimunum til hamingju með nýju bygginguna sína.

Þetta nýja samkomuhús er byggt í nútíma hluta borgarinnar. Hin háa tignalega bygging er áhrifamikið tákn viðurvistar kirkjunnar í landinu sem telur 4.5 milljón manns, þar af 475 kirkjumeðlimi.

Öldungur Christofferson, ásamt David Hill forseta Slóvaníu/Króatíu trúboðsins og eiginkonu hans, Dana, heimsótti aðra staði, þar á meðal Ljubljana í Slóvaníu þar sem hann talaði til 150 meðlima, trúboða og trúarnema. Hann hrósaði meðlimum fyrir að vera nútíma frumbyggja í landi sínu. Útvarpsstöð og dagblað tóku einnig viðtöl við hann á ferðalagi hans.

Þann 26. maí heimsótti öldungur Christofferson Belgrad í Serbíu, þar sem hann talaði til rúmlega 70 manns sem höfðu ferðast með rútu og lest frá fjarlægðum stöðum. Fyrir flesta var þetta í fyrsta sinn sem meðlimur í Tólfpostularáðinu kom í heimsókn. Næsta dag átti öldungur Christofferson og Sladjan Mihajlovic, umdæmisforseti Beograd, fund með Bogoljub Sijakovic kirkjumálaráðherra Serbíu.

Öldungur Christofferson ferðaðist síðan til Sarajevo í Serbíu þar sem hann fundaði með sendiherra Bandaríkjanna í Bosníu-Hersegóvínu, Charles L. English. Kvöldvaka var haldin á heimili Rebekku og Jason Colvin. Bróðir Colvin vinnur í sendiráði Bandaríkjanna og heldur kirkjusamkomu í hverri viku á heimili sínu fyrir flóttafólk í Sarajevo. Rúmlega 30 vinir og nágrannar sóttu kvöldvökuna, þar á meðal trúarnemi frá Zadar í Króatíu. Talið er að þetta sé í fyrsta sinn sem allir meðlimir kirkjunnar í Bosníu-Hersegóvínu safnist saman á einn stað. Þeir voru minntir á að nú séu þeir að leggja grunn að því að trúboðar fari með fagnaðarerindið til sinnar þjóðar.

Kristijan Lepesic miðlaði upplýsingum fyrir þessa grein.