Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 21.02.2008

 

Fyrrum flugmaður gefur einlægan vitnisburð

Dieter F. Uchtdorf forseti , 67 ára, sem er kunnur að andlegum þroska og virðulegri framkomu, var settur í embætti sem annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu 3. febrúar 2008, en hann er sjötti ráðgjafinn sem fæddur er utan Bandaríkjanna.

Hann er Þjóðverji, fæddur 6. nóvember 1940, í Ostrava, Morava, í tékkneska lýðveldinu.  Fjölskylda hans gekk í kirkjuna eftir að áhugasöm eldri kona um trúboð bauð ömmu hans í kirkju í Austur-Þýskalandi. Hann skírðist tveimur árum eftir fjölskyldu sinni, er hann hafði náð átta ára aldri 1948.

Hann var kallaður í aðra sveit hinna Sjötíu í apríl 1994, í fyrstu sveit hinna Sjötíu í apríl 1996 og í forsætisráð hinna Sjötíu í ágúst 2002.

Öldungur Uchtdorf talar ljúfri og ástúðlegri röddu. Stundum heyrist rödd hans varla er hann auðmjúkur gefur vitnisburð sinni.

Þegar hann var djákni flutti fjölskylda hans til Frankfurt. Þar varð hann hugfanginn af hinni 12 ára gömlu Harriet Reich, nýjum trúskiptingi, fallegri ungri stúlku, með stór og dökk augu.

Þau lærðu að dansa saman í félagsstarfi kirkjunnar, en á unglingsárum þeirra voru tilfinningar hennar til hans ekki gagnkvæmar. „Auk þess,“ sagði Uchtdorf forseti í viðtali í Church News árið 2004, „elskuðu allir Harriet.“

Á efri táningsárum sínum gekk hann í þýska flugherinn til að láta draum sinn rætast um að verða flugmaður. Þar sem ekkert orrustuflugmannsnám var í Þýskalandi á þessum tíma, hlaut hann réttindi sín í Bandaríkjunum.

Þegar hann kom aftur til Þýskalands komast hann að því að Harriet var enn ógift. Í þetta sinn sigraði hann hjarta hennar með því að „standast allt til enda.“ Þau giftu sig í Bern-musterinu í Sviss árið 1962.


Eftir að Uchtdorf forseti lét af þjónustu sinni í hernum varð hann flugmaður hjá þýska flugfélaginu Lufthansa árið 1965, þar sem hann komst í efstu stjórnunarstöður. Hann var aðalflugmaður og varaforseti flugaðgerða þegar hann hætti störfum 1995. Þá var hann í annarri sveit hinna Sjötíu og vildi eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni og helga sig betur kirkjuköllun sinni.  Nokkru síðar var hann kallaður af Thomas S. Monson, þá fyrsta ráðgjafa í Æðsta forsætisráðinu, til þjónustu í fyrstu sveit hinna Stötíu.

Uchtdorfs-hjónin eiga tvö börn og sex barnabörn, sem öll eiga heima í Evrópu.
Þegar Uchtdorf forseti var ungur fékk hann þá hugdettu að flytja til Bandaríkjanna til að vera nær kirkjunni.

Öldungur Theodore M. Burton, sem þá þjónaði sem trúboðsforseti í Evrópu, ráðlagði honum að vera áfram í Þýskalandi og byggja kirkjuna upp þar. Uchtdorf brást við í trú og lagði sitt af mörkum við uppbyggingu stiku og musteris í Frankfurt.