Fréttir - 18.12.2009 |

Við viðtöku á 2009 Pioneer in Leardership verðlaununum frá BYU Management Society setti Dieter F. Uchtdorf forseti hönd sína utan um Mark Hale, forseta Utah Valley deildar. Uchtdorf forseti var viðurkenndur fyrir fordæmi sitt sem leiðtoga.
Dieter F. Uchtdorf, annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, var heiðraður fyrir ágæti og skuldbindingu við æðstu reglur þann 16. október síðastliðinn er honum voru veitt Pioneer in Leadership verðlaunin af Utah Valley deild BYU Management Society.
Við athöfnina, sem haldin var í Thanksgiving Point í Lehi, Utah, tók Uchtdorf forseti á móti verðlaununum og talaði um þörfina á því að hafa það sem kirkjan kennir í brennidepli hvað heiðarleika og siðferði hjá leiðtogum varðar.
„Trúarbrögð okkar, trú okkar, verður að endurspeglast í forystu okkar og forysta okkar verður að byggja á persónulegu réttlæti,“ sagði Uchtdorf forseti.
Uchtdorf forseti sagði viðstöddum að gjörðir fyrirtækis í einu landi geta haft áhrif á svæði hvarvetna í heiminum. Vegna þessara alheimsafleiðinga er mikil þörf fyrir heiðarlega leiðtoga, sagði hann.
Þema viðburðarins var „Að skapa jákvæða framtíð“ og var einbeitingin á þá forystu sem krafist er á óvissu tímum. Leiðtogar Utah Valley deildar BYU Management Society tjáðu mikilvægi þess að leiðtogar sýndu fordæmi við að veita von, sýn og gildi í viðskiptum, í samfélaginu og innan fjölskyldunnar og hefðu þeir valið Uchtdorf forseta vegna mikils fordæmis hans.
Á athöfninni talaði Gary Herbert fylkisstjóri um fordæmi í forystu hjá Uchtdorf forseta.
„Þjónusta þín er dæmi um þá þjónustu sem við þurfum, sérstaklega á þessum erfiðu tímum,“ sagði hann. „Þú ert framúrskarandi mannvinur og sýnir óhagganlega hollustu.“
Samkvæmt gögnum deildarinnar var Uchtdorf forseta veitt verðlaunin fyrir að vera „fordæmi forystu og heilinda … sem þjónar sem nefndarmaður í framkvæmdanefndum fyrir ríkisstjórnir og fyrirtæki“ og fyrir að „þjóna landi sínu á fyrirmyndar hátt.“
Mark Hale, forseti Utah Valley deildarinnar, veitti Uchtdorf forseta verðlaunin. Verðlaunin eru frumeintak af höggmynd af manni og kona og vagnhjóli.
Veislustjóri viðburðarins var Scott Haws frá KSL sjónvarpsstöðinni. Sönghópurinn Vocal Point frá BYU sá um tónlist kvöldsins.
Aðrir leiðtogar sem einnig voru viðstaddir voru Henry B. Eyring forseti, fyrsti ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, öldungur M. Russell Ballard í Tólfpostulasveitinni, öldungur Quentin L. Cook í Tólfpostulasveitinni, öldungur Cecil O. Samuelson af hinum Sjötíu og rektor Brigham Young University og Matt Holland rektor Utah Valley University. Með Uchtdorf forseta var eiginkona hans, systir Harriet R. Uchtdorf og dóttir þeirra, Antje Evans.