Fréttir - 07.10.2007 |
Tveir nýjustu meðlimir Æðsta forsætisráðsins og Tólfpostulasveitarinnar töluðu opinberlega á blaðamannafundi í gær um tilfinningar sínar er þeir voru beðnir að þjóna í æðstu stórnunarstofnunum Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.
Henry B. Eyring var tilnefndur á laugardaginn sem meðlimur í þriggja manna Æðsta forsætisráðið af Gordon B. Hinckley forseta, hinum 97 ára gamla leiðtoga Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Eyring forseti mun taka stöðu sem nefnd er annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu. Fyrsti ráðgjafi er Thomas S. Monson forseti, sem þjónað hefur sem postuli í 44 ár.
Hinckley forseti lagði einnig fyrir við hið hefðbundna „stuðningskjör“ kirkjumeðlima nafnið Quentin L. Cook sem nýjan postula. Hinar nýju ábyrgðarstöður – innan kirkjunnar venjulega nefndar „kallanir“ – voru kynntar á samkomu meðlimanna á hinum fyrsta af fimm fundum aðalráðstefnu kirkjunnar á laugardagsmorguninn.
Aðalráðstefnan sem er haldin tvisvar á ári dregur til sín meira en 100.000 manns til Ráðstefnuhallarinnar í miðborg Salt Lake City. Til viðbótar stilla milljónir sig inn á að hlusta á útsendingar út um heiminn.
Sæti losnaði í Æðsta forsætisráðinu við lát James E. Faust forseta í síðasta mánuði en hann hafði þjónað sem ráðgjafi Hinckleys forseta í 12 ár. Síðan skapaði hin nýja tilnefning Eyrings forseta í Æðsta forsætisráðið rými í Tólfpostulasveitinni.
Báðir þessir menn búa að ríkulegri starfsreynslu – Eyring forseti hefur B.S. gráðu í eðlisfræði frá Utah háskólanum og meistaragráðu í viðskiptastjórnun og doktorsgráðu í viðskiptastjórnun frá Harvard háskólanum. Öldungur Cook hefur bakgrunn í viðskiptum og lögfræði, þar á meðal í æðstu framkvæmdastjórn í heilsugæslustörfum og sem stjórnandi og eigandi í lögfræðistofu í Kaliforníu. Hann hefur fyrstu námsgráðu í stjórnmálafræðum frá Utah State háskólanum og doktorsgráðu í lögfræði frá Stanford háskólanum. Samt sem áður töluðu báðir þessir menn í gær um aðrar kröfur vegna þjónustu í kirkjunni.
Öldungur Cook sagði að það mundu vera „mikil mistök“ að halda að um væri að ræða einhverjar menntunar- eða starfslegar kröfur fyrir þjónustunni. „Fólk kemur með alls konar bakgrunn. Fólk sem elskar Drottin og hefur andlegan þroska er kallað í stöður. Það eru vissulega engar menntunar- eða starfslegar kröfur af nokkru tagi,“ sagði öldungur Cook.
Staðreyndin er sú að báðir mennirnir hafa eytt mörgum árum í þjónustu sína innan kirkjunnar. Eyring forseti hefur tvisvar þjónað sem yfirmaður menntamála kirkjunnar og í nokkrum leiðandi ráðum kirkjunnar áður en hann varð postuli 1995.
Öldungur Cook hefur haft yfirumsjón með trúboðsstarfi kirkjunnar út um heiminn, undir beinni stjórn Tólfpostulasveitarinnar. Hann þjónaði einnig sem meðlimur forsætisráðs sveitar hinna Sjötíu, og sem meðlimur fyrstu og annarrar sveitar hinna Sjötíu. Báðar þessar stofnanir hjálpa Æðsta forsætisráðinu og hinum Tólf við stjórnun heimskirkjunnar.
Öldungur Cook hefur einnig verið í leiðtogastöðum fyrir kirkjuna á Filippseyjum, á Kyrrahafssvæðinu og í Norð-Vestur Bandaríkjunum. Hann hefur á mismunandi tíma þjónað á nánast öllum stigum kirkjustjórnunar, frá biskupi til núverandi stöðu sinnar.