Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 26.05.2010

 

Forseti Evrópusvæðisins flutti ávarp á heimsráðstefnu þvertrúarlegrar umræðu í Makedóníu.

Öldungur Erich W. Kopischke, forseti Evrópusvæðis Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu býr að einstakri reynslu og aðstöðu til að koma góðu til leiðar, ekki aðeins meðal sinn trúföstu meðlima, heldur einnig í samfélaginu öllu, sagði öldungur Erich W. Kopischke á annarri heimsráðstefnu þvertrúarlegrar og fjölþjóðmenningarlegrar umræðu (vefsíðuhlekkur: worldconferenceohrid.kultura.gov.mk). "Við erum góðviljað fólk, fús til að vinna með öðrum að því að verja það sem er dyggðugt, fagurt og lofsvert," sagði forseti Evrópusvæðis kirkjunnar frammi fyrir nokkur hundruð leiðtogum ríkisstjórna, fræðimanna og fulltrúa kirkna og trúarsamfélaga.

Ráðstefnan, sem haldin var í Ohrid, Makedóníu, 6. til 8. maí 2010, var skipulögð í samstarfi menningarráðuneytis Makedóníu og nefndar þar í landi um samband trúarsamfélaga, með stuðningi samtaka Sameinuðu þjóðanna um menntun, vísindi og menningu (UNESCO).

Öldungur Kopischke fór fyrir fjögurra manna fulltrúanefnd kirkjunnar. Dr. Johann Wondra, sérstakur ráðgjafi forsætisráðs Evrópusvæðisins um Balkanlöndin, tók einnig til máls í almennri umræðu ráðstefnunnar, og lagði áherslu á að heimsfriður hæfist á heimilinu og í fjölskyldunni. Báðir áttu óformlegar viðræður við ýmsa leiðtoga ríkisstjórna og trúarsamfélaga á ráðstefnunni. Þeir höfðu í lið með sér Sterling David Colton, lögráðgjafa um Evrópu, og Ralf Grünke, aðstoðarframkæmdastjóra almannamála kirkjunnar.  Sá síðast nefndi var valinn í aðalskipulagsnefnd þriðju heimsráðstefnunnar, sem haldin verður 2013.

Fulltrúanefndir ráðstefnunnar lét frá sér fara yfirlýsingu sem send verður Aðalnefnd Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandinu, Evrópuráðinu, Samtökum Evrópu um öryggismál og samvinnu (OSCE), Ráði ríkisstjórna Sameinuðu þjóðanna og fleiri samtökum.   Í yfirlýsingunni segir "að trúarbrögð séu afar mikilvæg til þess að hvetja til samúðar og samstöðu meðal samfélaga, þjóða og ríkja" og "að hver menning og trúarbrögð búi að mismunandi eiginleikum og sérkennum." Í henni er einnig sú tilskipun að "dregið verði úr mistúlkun ágreinings og menningar og stuðlað að gagnkvæmri virðingu manna og samfélaga.

Hugtakið "öldungur" er notað til að titla trúboða kirkjunnar og þá sem skipa leiðtogaráð svæða eða ríkja. Forsætisráð Evrópusvæðisins er þriggja manna kirkjuráð yfir Evrópu.