Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 19.06.2011

 

Fjölskylduverðlaun Danmerkur 2011 veitt Lolu Jensen

Stikuforsetinn Erik Bernskov veitir Lolu Jensen viðurkenninguna.

Sjónvarpsleiðbeinandinn, Lola Jensen, Ejby í Lejre, hlaut fjölskylduviðurkenninguna Family Values Award frá Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, 15. maí síðastliðinn.  

Lola Jensen hlaut viðurkenninguna fyrir dyggðugt starf sitt við að styðja og efla hlutverk fjölskyldunnar í dönsku samfélagi. Lola Jensen hefur starfað sem fjölskylduráðgjafi í 26 ár.  Hún hefur skrifað fjórar bækur og gefið út átta mynddiska. Lola Jensen er þekkt andlit á stjónvarpsstöðvunum TV DR1 og TV3.  Síðastliðið tvö og hálft ár hefur hún séð um dagskrárliðinn Go'morgen Denmark á TV2, þar sem hún hefur veitt barnafjölskyldum leiðsögn. Jensen sagðist bæði hafa verið glöð og snortin þegar hún hlaut viðurkenninguna, sem var höggmynd af fjölskyldu. "Nú hef ég nægilegt þrek til næstu fimm ára," sagði hún.

Kirkja Jesú Krists hvetur til öflugs hjónabands og fjölskyldulífs, þar sem ástúð, traust, uppeldi og einstaklingsþroski foreldra og barna á rætur í sameiginlegri skuldbindingu og viðurkenningu. Viðurkenningin Family Values Awards er veitt leiðtogum sem unnið hafa ötullega að því að vernda hin hefðbundnu fjölskyldugildi.  Hún er yfirleitt veitt samfélagsleiðtogum utan kirkjunnar, sem staðið hafa vörð um fjölskyldugildi og vinna stöðug að því að efla staðla sem eru í samhljóm við afstöðu kirkjunnar til fjölskyldunnar.