Fréttir - 03.04.2008 |
Nýjar mælingar sýna að meðlimafjöldi kirkjunnar fer yfir 13 milljónir í fyrsta sinn, er þær verða tilkynntar á aðalráðstefnu Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í apríl næstkomandi. Mælingin sýnir stöðugan vöxt kirkjunnar, bæði innan og utan Bandaríkjanna. Miðað við núverandi framvindu þá er meðlimafjöldi kirkjunnar að aukast um eina milljón á hverjum þremur árum um heim allan.
Almannadeild kirkjunnar hefur látið þau orð falla að meðlimafjöldinn sé orðinn mikilvægur í huga fréttamanna sem skrifa um kirkjuna í núverandi kosningabaráttu til forseta Bandaríkjanna.
Starfsfólk sem daglega fær upphringingar frá fjölmiðlafólki segir að algengt sé í hinum ýmsu fylkjum að beðið sé um tölur um fjölda meðlima.
Vöxturinn er misjafn eftir heimssvæðum og er einna mestur í Afríku, samkvæmt tölfræði kirkjunnar. Í Nígeríu er árlegur vöxtur til að mynda 8.1 prósent. Á tímabilinu frá 2000 til 2006 hefur meðlimafjöldinn í Nígeríu vaxið frá 29.500 til næstum 79.500.
Kirkjan býr til meðlimaskýrslu þegar einstaklingur lætur skírast í kirkjuna. Árið 2006 voru til að mynda 272.800 skírnir trúskiptinga. Kirkjan býr einnig til meðlimaskýrslu fyrir barn með samþykki foreldris. Börn eru þó ekki talin meðlimir hafi þau ekki látið skírast þegar þau verða 9 ára. Hrein aukning „barna á meðlimaskýrslum“ á árinu 2006 var yfir 94.000.
Glen Buckner, tölfræðingur kirkjunnar og meðlimur í Association of Statisticians of American Religious Bodies útskýrir að „talning meðlima sé skipulögð og umfangsmikil.“ Hann segir að mikilvægt sé að telja alla meðlimi, hversu virkir sem þeir séu, því um 20 prósent meðlima trúarsafnaða hætta að hafa samband við söfnuð sinn á einhverjum tímapunkti.
Þessi talningaraðferð meðlima er öðruvísi en sú sem aðrar kirkjur beita. Í árbókinni Yearbook of American & Canadian Churches, er Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu sögð vera sú fjórða fjölmennasta í Bandaríkjunum, og viðurkennt að trúfélög fari ekki eftir sömu reglum við talningu meðlima sinna. Í árbókinni segir að „ekki sé farið eftir einhverjum einum staðli við gagnasöfnun til að sýna mismunandi samsetningu þeirra trúfélaga sem greint sé frá í árbókinni. Skilgreining meðlimafjölda og tengds efnis er afar mismunandi frá einni kirkju til annarrar.“
Í könnun stofnunarinnar Religious Congregations & Memberships in the United States 2000 segir reyndar að „mesti galli þeirrar aðferðafræði sem beitt væri í könnunni, fælist í mismunandi skilgreiningu meðlimafjöldans. … „Þar sem engin ákveðin skilgreiningaraðferð meðlimafjölda er fyrir hendi, ákvarða trúfélögin sjálf eigin meðlimafjölda.“
Rómversk kaþólska kirkjan telur til að mynda meðlimi sína samkvæmt meðaltali skírna og jarðarfara, en lúterska kirkjan byggir meðlimafjölda sinn á staðfestum meðlimum. Afar fáar kirkjur skrá virkni meðlima.
Þótt Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu mæli ekki meðlimafjölda samkvæmt virkni, gefa vísbendingar til kynna að um trausta virkni sé að ræða.
Góð vísbending um mikinn vöxt kirkjunnar er áætlun hennar um byggingu kapella. Á þessum tíma eru 8.254 kapellur utan Bandaríkjanna, sem ber vott um 10 prósent aukningu á síðasta fimm ára tímabili. Raunin hefur einnig verið sú innan Bandaríkjanna, þar sem um 6.361 kapellu er að ræða og vöxturinn því 9.6 prósent á sama tímabili. Margar þessara kapela eru nýttar undir nokkra söfnuði.
Í Bandaríkjunum byggir kirkjan ekki aðeins nýjar kapellur, heldur stækkar hinar eldri til að koma fleiri söfnuðum þar fyrir, einkum í austurhluta Bandaríkjanna.