Fréttir - 13.10.2009 |
Thomas S. Monson opnaði 179. aðalráðstefnu kirkjunnar sem haldin var 3. og 4. október sl. með því að tilkynna um fimm ný musteri sem áætlað er að byggja. Þessi musteri munu verða staðsett í Brigham City, Utah; Concepción, Chíle; Fortaleza, Brasilíu; Fort Lauderdale, Florida og Sapporo, Japan.
Með ofangreindu fimm musterum eru því 21 musteri nú á byggingarstigi eða hafa verið tilkynnt. Þegar lokið hefur verið að byggja þessi 21 musteri mun fjöldi starfræktra mustera verða 151 í heimininum.
„Við höldum áfram að byggja musteri,“ sagði Monson forseti. „Við þráum að eins margir meðlimir og mögulegt er hafi tækifæri til þess að sækja musterið án þess að ferðast óhóflega vegalengd.“
Musterið í Brigham City mun verða það 14. í Utah fylki. Tvö önnur Utah musteri voru vígð fyrr á þessu ári en það eru Draper Utah og Oquirrh Mountain Utah musterin.
Það eru í dag 13 musteri í Suður-Ameríku. Musterið í Concepción, Chíle, mun verða nnað musterið í Chíle.
Musterið í Fortaleza, Brazil, mun verða það sjötta í Brasilíu. Musteri í Manaus var tilkynnt í maí 2007 og eru í dag fjögur starfrækt musteri í Brasilíu.
Kirkjuþegnar í Suður-Florída og á Bahamaeyjum munu geta sótt nýja musterið sem verður í Fort Lauderdale, Florida en það mun verða annað musterið í Florida þegar það verður tekið í notkun.
Sapporo Japan musterið verður hið þriðja í Japan. Fyrir eru Tokyo og Fukuoka musterin.
Monson forseti sagði að um 83% kirkjuþegna búi innan við 320 km frá musteri. „Sú tala mun halda áfram að hækka er við byggjum ný musteri hvarvetna í heiminum,“ bætti hann við.