Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 17.10.2010

 

Fimm ný musteri tilkynnt

Thomas S. Monson forseti tilkynnti um fimm ný musteri á fyrsta ráðstefnuhlutanum.

Á fyrsta ráðstefnuhluta 180. aðalráðstefnu Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í byrjun mánaðarins, tilkynnti Thomas S. Monson forseti að kirkjan hugðist reisa fimm ný musteri.  Hin nýju musteri verða byggð í Hartford, Connecticut; Indianapolis, Indíana; Tijuana, Mexíkó; Urdaneta, Filippseyjum; og Lissabon, Portúgal. 

Hin nýju musteri kirkjunnar verða þau fyrstu í Portúgal, Indíana og Connecticut.  Musterið í Urdaneta verður hið þriðja í röðinni á Filippseyjum og musterið í Tijuana verður hið 13. í röðinni í Mexíkó.

Nánari upplýsingar um hin nýju musteri verða veittar þegar þær verða tiltækar.

Þegnar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu líta á musterið sem „hús Drottins“ og helgasta stað jarðar. Ólíkt samkomuhúsunum, þar sem hvíldardagstilbeiðsla og félagsstarf fer fram, eru musterin opin alla vikuna nema á sunnudögum.

Með musterisþjónustu eru fjölskyldur innsiglaðar saman að eilífu, tilgangur lífsins kenndur og sáluhjálparáætlun Guðs útskýrð. Musterissókn styrkir skuldbindingu Síðari daga heilagra um að lifa eftir kristnum reglum, leggja áherslu á persónulegan þroska og helga sig betur fjölskyldunni.

Sem stendur eru 134 starfrækt musteri víðsvegar um heim, sjö eru í byggingu og tilkynnt hefur verið um 16, með þeim sem tilkynnt voru í dag.

Nánari upplýsingar um hin nýju musteri verða veittar þegar þær verða tiltækar.

Þegnar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu líta á musterið sem „hús Drottins“ og helgasta stað jarðar. Ólíkt samkomuhúsunumþar sem hvíldardagstilbeiðsla og félagsstarf fer fram, eru musterin opin alla vikuna nema á sunnudögum.

Með musterisþjónustu eru fjölskyldur innsiglaðar saman að eilífu, tilgangur lífsins kenndur og sáluhjálparáætlun Guðs útskýrð. Musterissókn styrkir skuldbindingu Síðari daga heilagra um að lifa eftir kristnum reglum, leggja áherslu á persónulegan þroska og helga sig betur fjölskyldunni.

Sem stendur eru 134 starfrækt musteri um heim, sjö eru í byggingu og tilkynnt hefur verið um 16, með þeim sem tilkynnt voru í dag.