Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 07.10.2008

 

Festinord 2008

Þátttakendur Festinord á leið á vitnisburðarsamkomu

Festinord, eða hátíðisdagar í norðri, sem Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu stóð fyrir var undursamlegur viðburður með yfir 700 ungum og einhleypum frá 27 löndum, sem komu saman í Jonkoping, Svíþjóð, 21. - 25. júlí.  Þema í ár var „Þakklæti í fyrirrúmi,“ og var um að ræða fimm daga af líkamlegri, félagslegri og andlegri styrkingu. 

Einstaklingar og lið tóku þátt í margvíslegum íþróttum, svifdiskakeppni, breikdansi og söngvakeppni.  Einnig voru sjö söngvarar frá fimm löndum sem tóku þátt í söngvakeppni.  Sungu þeir söngva sem þeir sömdu sjálfir (bæði lag og texta) og fluttu frammi fyrir fullu húsi áheyrenda.  Þeir voru síðan dæmdir af dómurum frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð.  Sigurvegarinn var Robin Akebrand frá Helsingborg.

Partí og dansleikir voru öll kvöldin:  Big Premier-partí, dansleikur að hætti sjötta áratugarins, „Do it right Black & White“ dansleikur og loka dansleikur.  Frjáls tími var til heimsókna og sameiginlegs borðhalds góðrar máltíða.

Þar sem þemað var „Þakklæti í fyrirrúmi“ var þakklæti tjáð í miklum mæli á vitnisburðarsamkomum sem haldnar voru í hinum ýmsu húsakynum og voru yfir tvær klukkustundir að lengd.  Það sem fram kom í trúarskólabekkjum að morgni, trúarstundum að morgni, námskeiðum og kvöldvökum, þar sem öldungur Eivind Sterri og öldungur Erich og systir Christiane Kopischke voru kennarar, snerti andlegan streng í hjörtum allra.  Lexíur námsbekkja voru á persónulegum nótum um stefnumót, skírlífi og kirkjukenningar.  Öldungur Kopischke sagði við hópinn: „Hver fjölskylda býr að eigin brautryðjendasögu. Gott er að minnast þess hvernig forfeður okkar kynntust fyrst fagnaðarerindinu og hverju þeir þurftu að fórna til að finna fótfestu í þessu verki. Stundum erum við þau fyrstu sem finnum kirkjuna og erum því brautryðjendur í fjölskyldu okkar. Lifið líkt og svo væri, því með lífi okkar skiljum við eftir arfleifð fyrir komandi kynslóðir, sem börn okkar og barnabörn geta byggt á. Hver verður vitneskja þeirra um okkur? Hvað munu þau segja um okkur? Hvernig getum við tekist á við ábyrgð okkar? Ég legg til að við svörum þessum spurningum hvert fyrir sig og mótum hugsýn fyrir líf okkar.  Einfaldasta leiðin til að gera það er að fylgja þessari leiðsögn Nefís: „Og svo bar við, að við lifðum eftir leiðum hamingjunnar‘ (2 Ne 5:27). Nemið hin einföldu þrep þess sem Nefí segir vera ‚leiðir hamingjunnar‘ og tileinkið ykkur þau. 

Þriggja mínútna kvikmynd af Festinord og myndasýning af þessum fimm daga viðburði, ásamt miklu magni ljósmynda af öllum þáttum ráðstefnunnar, er lýsandi fyrir þemað „Þakklæti í fyrirrúmi,“ bæði líkamlega, félagslega og andlega.  Kvikmyndina er hægt að sjá á vefsíðu Festinord á www.festinord.org.