Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 12.08.2008

 

Farandsöngvari finnur fagnaðarerindið

Þessi virðulega bygging er fyrsta samkomuhús Síðari daga heilgara í Búdapest, Ungverjalandi og var vígð 17. október 1989 af Thomas S. Monson forseta. Andras Csepai og aðrir kirkjuþegnar frá fyrstu árum kirkjunnar í Ungverjalandi sóttu kirkjusamkomur í þessari byggingu.

Andras Csepai var að syngja á götuhorni í Svíþjóð, nokkuð sem hann elskar að gera, þegar tvær systur trúboðar stoppuðu til að hlusta.  Þremur dögum síðar hafði hann tekið skírn.

„Þær byrjuðu að tala,“ segir bróðir Csepai. „Ég fann að það var mjög sérstakur andi með þeim.  Þær voru öðruvísi en aðrir í kring um mig.  Ég veit ekki afhverju en ég fann fyrir heilögum anda.  Ég vissi ekki einu sinni hvaða kirkju þær voru frá.“

Honum var kennd önnur lexían næsta dag.  Á þriðja degi og áður en hann snéri aftur til Ungverjalands, hafði hann tekið skírn.

Andras fæddist árið 1955 og var alinn upp á trúræknu heimili í Ungverjalandi kommúnismans.  Suma daga hafði hann meiri áhuga á trúmálum en aðra.  En oftast trúði hann á Guð.

Árið 1988 fékk hann sérstakt leyfi til þess að heimsækja Skandinavíu þar sem hann heimsótti vini.  Á hverjum morgni fór hann með skipi frá Danmörku yfir sjóinn til Helsingborg í Svíþjóð.  Þar söng hann fyrir fólk úti á götu og lifði á góðmennsku ókunnugra.

„Ég hugleiddi trúmál mjög alvarlega. Þetta var árið sem ég bað mjög innilega til himnesks föðurs um hjálp,“ sagði hann síðar frá í viðtali árið 1997 við starfsmann sögudeildar kirkjunnar.

Á meðan á „annarri lexíu stóð helltist heilagur andi yfir mig í gríðarlegu miklu magni. Allt mitt líf mun ég koma til með að muna eftir því sem þarna gerðist. ... Þessi önnur lexía var vendipunktur í lífi mínu. Mér fannst það vera svarið mitt.“
Hann skírðist síðan 30. júlí 1988 uppfullur af brennandi vitnisburði í hjarta sér. „Ég var svo lánsamur að geta flutt litla ræðu eftir skírn mína,“ sagði hann. „Ég vissi ekki mikið um marga hluti.... En ég fann fyrir einhverju frá Drottni.... Það sem ég upplifði var mjög sterk og tilfinningarík reynsla.“

Eftir heimkomu sína til Ungverjalands hélt bróðir Csepai áfram stórtækri áætlun sinni við að nema ritningarnar.   „Það var svo svalandi að læra. Í hvert skipti sem ég lærði og bað þá fann ég aftur fyrir andanum,“ sagði hann. „Ég gaf sjálfum mér þá áskorun að læra og nema meira.“

Á einum degi í lítilli íbúð í Pest hitti hann alla kirkjuþegnana í Ungverjalandi.  Kirkjuþegnar voru fáir en fjöldi þeirra óx þó hratt.  Þann 6. janúar 1989, hálfu áru síðar, var fyrsta greinin í Búdapest stofnuð með Peter Varga skurðlækni sem greinarforseta.  Bróðir Csepai er því einn af fyrstu kirkjuþegnum í Ungverjalandi.
Hann man á ástúðlegan hátt eftir fyrsta samkomuhúsinu sem var vígt þann 17. október 1989 af Thomas S. Monson sem þá var annar ráðgjafi í æðsta forsætisráðinu.  Hinir ungu kirkjuþegnar voru spenntir yfir því að hafa nýuppgerða byggingu fyrir samkomustað.

„Ég hugsa til þess hvernig nýjir kirkjuþegnar breytast, hvernig þeir taka á móti fagnaðarerindinu og ég byrjaði að finna fyrir þessum tilfinningum í kirkju Drottins í Ungverjalandi,“ sagði hann.

Bróðir Csepai hafði ekki verið í kirkjunni í tíu ár þegar hann var kallaður sem ráðgjafi í trúboðsforsætisráðinu sem gerði honum kleift að ferðast um landið og sjá með eigin augum vöxt kirkjunnar í Ungverjalandi.

„Það besta sem ég get gert fyrir fólkið er að vera gott fordæmi og bera vitnisburð minn. Það er það mikilvægasta sem ég hef lært frá þessari köllun,“ sagði hann.