Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 23.10.2010

 

Enn að nýju fara postular um landið

Jean-Louis Tauran kardínáli, fyrir miðju, átti viðræður við öldunga Caussé, vinstri, Ballard, Rasband og Edgley biskup

Sagan greinir frá því að tveir postular hafi lokið upp dyrunum fyrir fólkið í landinu til að taka á móti fagnaðarerindinu og heimsótt þar á meðal Róm.  Öldungur Russell M. Nelson vígði sex þjóðir í suðausturhluta Evrópu og öldungur M. Russell Ballard naut húsakynna embættismanna Vatíkansins í Róm er þeir heimsóttu Evrópu um miðjan september á þessu ári.

Í framlengdri ferð um lönd í Evrópu, töluðu báður postular Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu (mormóna) á samkomum hinna trúföstu kirkjunnar og gesta þeirra, allt frá Svíþjóð til Ítalíu.  Öldungur Nelson bar fram vígslublessun fyrir löndin og íbúa sex þjóða á Balkansskaganum, sem áður voru hluti fyrrum Júgóslavíu.  Hann sagði um þá reynslu: "Merking [vígslubænarinnar] er sú að við snerum lyklinum svo réttlætið geti byrjað að blómstra, fólki til blessunar, svo það geti lært boðorð Guðs og notið hagsældar í landinu.   Við veittum blessun friðar og samhljóms."

Embættismenn Vatíkansins buðu öldung Ballard velkominn til "alúðlegra viðræðna um sameiginleg trúarefni."  William Joseph Levada Kardínáli, yfirmaður safnaðarins um trúarkenninguna, lét þakkir í ljós fyrir hin góðu samskipti sem Síðari daga heilagir hafa átt við kaþólska söfnuði.   Öldungur Ballard dró saman heimsókn sína og sagði: "Við áttum afar góðar viðræður.  Þær snerust að mestu um gildi og hvernig við gætum staðið saman um málefni sem koma okkur öllum við."

Embættismönnum kirkjunnar var boðið að hitta Jean Louis Tauran kardínála, sem er yfirmaður páfaráðs um trúarumræður. Með öldungi Ballard í för voru öldungur Rasband í sveit hinna Sjötíu í kirkjunni, Richard Edgely biskup og öldungur Gerald Causse í forsætisráði Evrópusvæðis kirkjunnar. Edgely biskup gafst færi á að útskýra hjálparstarf kirkjunnar og færði jafnframt þakkir fyrir það starf sem kaþólskar hjálparstofnanir hafa innt af hendi í þágu hinna nauðstöddu.

Á fáeinu fundum sem embættismenn beggja kirkna héldu var rætt um sameiginleg hugðarefni um siðgæðisgildi, hjónabandið og fjölskylduna. Lögð var áhersla á nauðsyn þess að snúa bökum saman í því að láta rödd trúfrelsis heyrast. 

Meðan Róm var heimsótt átti fulltrúanefnd kirkjunnar stund með kirkjumeðlimum og skoðaði lóðina sem valin var fyrir musteri í Róm, sem er hinum trúföstu kirkjunnar helg bygging.

Þegar meðlimir kirkjunnar komu saman til að njóta kennslu og innblásturs, mátti heyra margar þakkir fyrir að enn á ný færu postular Drottins um Evrópu til að sinna málefnum kirkjunnar. Öldungur Nelson sagðist hafa verið djúpt snortinn af vinarhug fólksins.  Hann sagði um Balkanlöndin: "Mér voru það forréttindi að fá að þjóna þeim."