Fréttir - 03.02.2009 |

Verkamenn í London leggja síðustu hönd á undirbúning styttunnar af englinum Moróní áður en hún er hífð á sinn nýja stað efst a turnspíru London musterisins. Styttunni var lyft með þyrlu sem kom frá stað í 93 kílómetra fjarlægð.
Þegar hinn 13 ára gamli Aaron Glover frétti það í Bristol England Southmead deildinni sinni að stytta af Moróní yrði sett efst á turnspíru London England musterisins mánudaginn 15. desember fann hann „hlýja tilfinningu,“ og hann fann bara að hann „yrði að komast þangað.“ Móðir hans fékk frí fyrir hann í skólanum, en óvissa ríkti um það hvernig hann kæmist 240 kílómetra leiðina til musterisins.
Bob Horton, einnig frá Southmead, hafði ákveðið að fara til musterisins til að mynda þennan „einu sinni á ævinni“ atburð fyrir barnabörnin sín, og hann bauð deildarfélaga sínum Paul Webster með, en hann stakk upp á að þeir byðu unga djáknanum Aaron. En þeir vissu þó ekki um þrá hans til að fara.
Þeir þrír stóðu og horfðu á undir gráum drungalegum himni, ásamt 150 öðrum, þegar þyrla kom fljúgandi frá Buckinghamshire, í 93 kílómetra fjarlægð, til þess að lyfta 2,40 metra, gullhúðaðri styttunni upp á topp hins 50 ára gamla musteris. Vinnupallar – sem búið var að reisa – gerðu byggingamönnum kleift að komast upp á topp 55 metra hárrar spírunnar til að festa styttuna.
Stutta stund stöðvaðist umferðin á hraðbraut A22, sem liggur við musterið, og áhorfendur drifu sig út úr bílunum sínum til að gægjast í gegnum musterishliðið.
Öldungur Braden Howard, trúboði í England London South trúboðinu, sagði: „Myndin snerist hring eftir hring með lúður í hendi á leiðinni á toppinn eins og hún vildi segja: ‘Hér er ég!’ Við kunnum að meta þetta.“
„Það má segja að draumarnir rætist,“ sagði David Scarlet í East Grinstead deildinni, Crawley England stikunni. „Allt heila líf mitt í kirkjunni hefur verið kraftaverki líkast, og þetta er eitt af þeim.“
Staðsetning Morónís var lokapunkturinn á afmælishátíð London musterisins, sem fyrst var vígt 1958 af David O. McKay forseta og endurvígt 1993 af Gordon B. Hinckley forseta. Innifalið í hátíðahöldunum hefur verið endurbygging Manor House og gestamiðstöðvarinnar, trúboðsskrifstofu hefur verið bætt við á musterislóðina og endurnýjun gistiaðstöðu musterisgesta.
Það bætist í hóp Síðari daga heilagra mustera út um heiminn – Tokyo, Sao Paulo, Bern, og Freiberg – sem hafa á seinni árum bætt þessari kunnuglegu mynd á musterin, og uppfylla þannig með nokkrum hætti það sem postulinn Jóhannes sagði: „Og ég sá annan engil fljúga um háhvolf himins.“
Vissulega flaug hann. Þyrlan hóf upp trefjaglersstyttuna og flaug að spírunni örskammt frá. Sex feta trétoppur koparklæddrar spírunnar var fjarlægður fyrir nýja viðbótina. Að öðru leyti er spíran timburgrind með koparklæðningu.
„Að lokum verður musterið fullbyggt,“ sagði Rowland Elvidge, fyrrum forseti London England musterisins, þar sem hann stóð á rennvotu grasinu og fylgdist með framkvæmdinni. Bróðir Elvidge átti hugmyndina að því að engillinn Moróní yrði settur á musterið og annaðist um að fá samþykki í viðkomandi bæjarstjórn.
„Þessi áfangi gerir London musterið fullgilt meðal mustera,“ sagði Michael Fagg, núverandi forseti London musterisins.
Venjulega er engillinn Moróní settur á musteristopp með stórum byggingakrana, útskýir Carl Champagnie, sem stjórnaði margvíslegum byggingarverkefnunum á musterislóðinni. En til að ná upp fyrir spíruna þurfti 80 tonna krana, og þungi hans hefði skaðað lóðina. Ekki sakaði að notkun þyrlu kostaði miklu minna en krani hefði kostað. Byggingamennirnir, klæddir vinnufötum sínum notuðu hvíta hanska til að skaða ekki gulli húðað yfirborð styttunnar.
„Við höfum unnið við Buckingham höllina og margar dómkirkjur,“ útskýrir Bob Bolton, byggingastjóri Stone West, „en þetta er í fyrsta sinn sem við höfum unnið með engli.“