Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 16.09.2008

 

Deseret Industries tekur höndum saman við samfélagið

Systir Gwen Wilson og öldungur Vaughn Wilson, frá Samfélags samstarfsverkefninu, í verslun Deseret Industries á Velferðartorgi.

Flóttamannafjölskylda með tvö börn sváfu á gólfinu í íbúð sinni því þau áttu engin rúm.  Einhleyp móðir, sem neyddist vegna efnahags aðstæðna til þess að flytja í hverfi þar sem mikið er um glæpi, varð þunglynd vegna þess að hún átti engin húsgögn.  Kona og dóttir hennar misstu allt sem þær áttu, þar á meðal fötin sín, vegna heimilisdeilna.

Öllu þessu fólki var á síðasta ári veitt aðstoð frá Samfélags samstarfsverkefni kirkjunnar sem, í gegnum Deseret Industries, býður stofnunum aðstoð.  Er um að ræða stofnanir sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni og eru þær á víð og dreif í sjö fylkjum í Bandaríkjunum.  

Öldungur Vaughn Wilson, sem þjónar á trúboði við samhæfingar á Samfélags samstarfsverkefninu ásamt konu sinni systur, Gwen Wilson, sagði þessar sögur vera einungis brot af hundruðum árangursríkra sagna sem gerst hafa fyrir tilstilli verkefnis sem ekki einungis hjálpar þeim sem eiga erfitt, heldur gefur einnig Síðari daga heilögum tækifæri til að þjóna.  

„Þegar við setjum okkur í samband við samfélagsstofnanir þá skiljum við betur hvað er að gerast í samfélaginu okkar og hverjir þurfa á hjálp að halda,“ sagði Öldungur Wilson.  „Við skynjum meiri hluttekningu gagnvart því sem er að gerast í kringum okkur.“
Samfélags samstarfsverkefnið hófst árið 1999 þegar velferðarþjónustudeild Deseret Industries útbjó úttektarmiða sem stofnanir sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni og ekki eru tengdar SDH kirkjunni geta notað til þess að hjálpa því fólki sem þessar stofnanir þjóna.  Úttektarmiðana geta einstaklingar og fjölskyldur, sem þarnast aðstoðar, notað til þess að kaupa vörur í Deseret Industries verslunum.

Þessar stofnanir þjóna í flestum tilfellum heimilislausum, flóttamönnum, þeim sem hafa lent í óförum, misnotuðum börnum, fóstur fjölskyldum, kirkjum, hinum öldruðu, hinum fötluðu, eiturlyfja sjúklingum, sjúkrahúsum, fyrrverandi föngum, ungum mæðrum, unglingum í erfiðleikum, fátækum fjölskyldum, atvinnulausum og þeim sem hafa lent í heimilisofbeldi sagði bróðir Wilson. 
Á síðari árum hefur verkefninu vaxið fiskur um hrygg.  Í dag eru rúmlega 280 stofnanir, sem staðsettar eru í sjö fylkjum í vestur Bandaríkjunum, þátttakendur.  Rétt tæplega 19.000 einstaklingum var veitt aðstoð á árinu 2007.
„Á þessari stundu á fjölskyldan okkar bágt og þessi gjöf mun verða notuð á viðeigandi hátt,“ skrifaði þiggjandi aðili í þakkarbréfi til kirkjunnar.  „Ætlun okkar er að komast aftur á réttan kjöl, leggja hart að okkur og einhvern daginn munum við geta veitt þeim sem eru í okkar sporum í dag aðstoð í framtíðinni.  Takk kærlega fyrir góðvildar gjafir ykkar.“ 

Verkefnið gengur upp því það eru margar „hágæða stofnanir sem virkilega þykir annt um fólkið sem þær eru að aðstoða og aðstoðin er veitt á árangursríkan hátt,“ sagði Öldungur Wilson.

Og stofnanirnar segja að Síðari daga heilagir geti hjálpað.

Öldungur og systir Wilson vona að þegar kirkjuþegnar velji þjónustuverkefni fyrir fjölskyldur sínar og kirkjudeildir þá muni þeir notfæra sér Samfélags samstarfsverkefnið.

Til dæmis var hluti af verkefni sem kirkjuþegnar Norður Alpine stikunnar kláruðu í apríl síðastliðnum að útvega bútasaumsteppi, ungbarnateppi, dúkkur, lök, hreinlætispakka, skólapakka og leikföng til handa 10 stofnunum í samfélaginu.
„Tilgangur okkar er að hjálpa kirkjuþegnum að vera meira vakandi gagnvart Samfélags samstarfsverkefninu…og hjálpa þeim að veita stofnunum og öðrum persónulegri þjónustu,“ sagði hann.   

Til dæmis eru 70 stofnanir í Saltvatnsdalnum sem taka þátt í Samfélags samstarfsverkefninu.  „Þetta er einungis brot af þeim stofnunum sem til eru.  Það eru svo margar þarfir.“   Þær stofnanir sem taka þátt í Samfélags samstarfsverkefninu með kirkjunni segja alltaf: „Við gætum ekki sinnt okkar vinnu án ykkar hjálpar,“ sagði systir Wilson.