Fréttir - 21.09.2011 |
Helgina 1. og 2. október fer fram Aðalfundur Líknarfélagsins og aðalráðstefna Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Um er að ræða gervihnattarútsendingu sem móttekin verður í samkomuhúsinu að Ásabraut 2, Garðabæ. Allir eru velkomnir. Útsendingartímar sem hér segir:
Laugardagur 1. október:
Aðalráðstefna Líknarfélagsins 90mín Kl. 14:00 – 15:30
Laugardagur morgunfundur 120mín Kl. 16:00 – 18:00
Sunnudagur 2. október:
Prestdæmisfundur 120mín Kl. 9:00 – 11:00
Laugardags eftirmiðdagsfundur 120mín Kl. 12:00 – 14:00
Sunnudagur, morgunfundur 120mín Kl. 16:00 – 18:00
Sunnudagur, eftirmiðdagsfundur 120mín Kl. 20:00 – 22:00
Þúsundir Síðari daga heilagra munu safnast saman í Ráðstefnuhöllinni, sem er í miðbæ Salt Lake City, um helgina til þess að sækja aðalráðstefnu. Hundruðir þúsunda til viðbótar, í Utah og nærliggjandi fylkjum, munu horfa á aðalráðstefnuna í beinni útsendingu í sjónvarpinu. Milljónir til viðbótar munu horfa á í gegnum Alnetið eða gervihnattamóttakara sem eru staðsettir í rúmlega 6000 kirkjubyggingum, þar á meðal samkomuhúsinu okkar í Garðabæ, eins og fram hefur komið.
Thomas Spencer Monson 16. forseti kirkjunnar, sem studdur var sem spámaður, sjáandi og opinberari og sem forseti Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu á laugardagsmorgni 178. árlegu aðalráðstefnunni þann 5. apríl 2008, verður í forsæti á ráðstefnunni.
Aðalráðstefnur Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu eru samkomur þar sem leiðtogar, kirkjuþegnar og allir aðrir sem vilja hlusta koma saman til að heyra boðskap um trú á Jesú Krists og fagnaðarerindi hans. Ritningarlegar kenningar eru kenndar, sálmar sungnir og bænir fluttar til þess eins að hvetja fólk til að lifa kristilegra lífi.
Ráðstefnurnar, sem eru haldnar á tvisvar á ári, samanstanda af fimm hlutum sem haldnir eru á fyrsta laugardeginum og sunnudeginum í apríl og október. Þrír hlutar eru á laugardeginum og tveir á sunnudeginum.
Fyrsta aðalráðstefnan var haldin tveimur mánuðum eftir að kirkjan var formlega skipulög, í júní 1830. Í dag taka milljónir Mormóna og gesta þátt í aðalráðstefnum sem er mikil breyting frá auðmjúkri og lítilli byrjun þegar einungis fáir kirkjuþegnar voru viðstaddir.
Brigham Young, annar forseti kirkjunnar, skipulagði byggingu Laufskálans í Salt Lake City sem stað fyrir stærri fundi eins og aðalráðstefnu. Byggingu Laufskálans lauk 1867.
„ Eftir að hinir heilögu komu til Salt Lake dalsins varð aðalráðstefna tími endurfunda og andlegs vaxtar,“ skrifaði Kenneth W. Godrey í febrúar 1981 útgáfu af Ensign sem er mánaðarlegt tímarit kirkjunnar.
Árið 2000, eftir að hafa haldið aðalráðstefnuna í 133 ár í Laufskálanum, lauk byggingu Ráðstefnuhallarinnar sem getur tekið 21.000 manns í sæti í aðalsalnum og getur því mun betur tekið á móti mannfjöldanum. Umfram sæti eru til staðar á musteristorginu, á stöðum eins og í Laufskálanum og minningarbyggingu Joseph Smith.
Til að gefa fólki sem ekki er nálægt Ráðstefnuhöllinni og musterstorginu tækifæri til að horfa á seturnar þá sendir kirkjan út seturnar til rúmlega 6000 gervihnatta tenginga víðsvegar um heiminn ásamt því að streyma hljóði og mynd út á Alnetið.
Með fjölbreytni Síðari daga heilagra kemur einnig fjölbreytileiki í tungumálum. Hundruðir túlkna hjálpa til við að þýða allar ræðurnar og bænirnar yfir á 94 tungumál, þar á meðal táknmál og fyrir textavarp. Þar að auki eru ræðurnar gefnar út á mörgum tungumálum og dreift til kirkjuþegna um allan heim, nokkrum vikum eftir ráðstefnuna, í gegnum kirkjutímaritin.
Godfrey bætir við: „Þrátt fyrir breytingarnar er varðar útsendingu aðalráðstefnu til hinna heilögu, þá hefur nánast alltaf verið haldnar aðalráðstefnur og þær hafa alltaf verið mjög mikilvægar…Hvort sem kirkjuþegnar eru í Laufskálanum, sjónvarpsherbergum sínum eða lesandi ræðurnar síðar meir, þá finna kirkjuþegnar fyrir anda trúar og vitnisburðar sem teygir sig til þeirra og snertir líf þeirra frá þessum tíma leiðbeininga, þessum tíma styrkinga sem kallaður er aðalráðstefna.“