Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 10.07.2008

 

Barátta gegn mislingum

Barn í Togo rúllar upp erm sinni til þess að fá bólusetningu gegn mislingum. Frá því október 2003 hefur kirkjan tekið þátt í verkefni með Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, UNICEF, Rauða krossnum í Bandaríkjunum og heilbrigðismálaráðuneytum til að minnka útbreiðslu mislinga í heiminum.

Bólefni gegn mislingum var kynnt til sögunnar í Afríku á sjöunda áratugnum í nígeríska þorpinu Imesi-Ile af Dr. Samuel Katz.  Hann fylgdist með öryggi og virkni bóluefnisins.   

„Mæðurnar sögðu mér að þær voru vanar að segja við hvora aðra - „Ekki telja börnin þín fyrr en mislingarnir eru yfirstaðnir“ – vegna þess að þær voru meðvitaðar um alvarleika sjúkdómsins og tíðni dauðsfalla“ segir Dr. Katz, sem nú er heiðraður sem Wilburt Cornell Davison prófessor og er fyrrverandi formaður bæklunalækninga hjá Duke háskólanum.

Í dag er hins vegar sagan önnur þökk sé framlagi lækna á borð við Dr. Katz, sem var frumkvöðull á sviði bóluefna, og samvinnu mannúðarsamtaka –þar á meðal kirkjunnar – sem sjá til þess að bóluefni nái til barna um heim allan.  

Frá því október 2003 hefur kirkjan tekið þátt í verkefnum með Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, UNICEF, Rauða krossinum í Bandaríkjunum og heilbrigðismálaráðuneytum gegn útbreiðslu mislinga í heiminum.

Með aðstoð 54,784 Síðari daga heilagra sjálfboðaliða hefur kirkjan stuðlað að herferð gegn mislingum í 28 löndum.  Í heildina hafa 189,261,345 börn verið bólusett í herferðinni þar sem kirkjuþegnar tóku þátt samkvæmt Velferðarþjónustu kirkjunnar.  Og framlagið er að bjarga lífum.     

Dauðsföll um heim allan vegna mislinga voru 242,000 árið 2006 en höfðu verið nærri 900,000 árið 1999.  Verkefnið Bólusetning gegn mislingum hefur það að markmiði að fækka dauðsföllum niður fyrir 100,000 fyrir árið 2011 sagði Dr. Peter Strebel hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin áætlar að um sex til átta milljón barna hafi látist á hverju ári vegna mislinga áður en bóluefnið kom til sögunnar.
„Með notkun bóluefnisins þá var þessi tala lækkuð niður í eina milljón í lok síðustu aldar.

Og þið vitið um hið ótrúlega starf sem samvinnan gegn mislingum hefur áorkað með því að fækka dauðsföllum um 68% á síðustu fimm árum og markmið þeirra að fækka þeim um 90% fyrir árið 2011,“ sagði Dr. Katz við fréttamann Church News í gegnum tölvupóst samskipti. „Skuldbinding SDH kirkjunnar í samstarfinu er sönnun þess að boðun kirkjunnar um heilsu og hamingju fyrir öll börn er bæði í orði og á borði,“ bætir hann við.

Af öllum þekktum vírusum þá smitast fólk auðveldast af mislingum og einhvern veginn ná mislingar alltaf að finna móttækilegan óbólusettan einstakling þegar mislingafaraldur kemur in í samfélagið, útskýrir Dr. Katz.  
Mislingar geta valdið 10-20 prósent dauðsfalla á meðal barna í löndum þar sem auðlindir eru af skornum skammti því börnin eru einnig fórnarlömb næringarleysis, malaríu og árása frá möðkum, segir hann.  Þeir sem komast lífs af gætu þó þjáðst af blindu, andlegum vanþroska og öðrum alvarlegum fylgikvillum.

Mislingar eru með tvö andlit.  Mislingar er mest smitandi af öllum þekktum sjúkdómum.  En á sama tíma eru mislingar sá sjúkdómur sem auðveldast er að bólusetja fyrir.  Hver bólusetning gegn mislingum kostar um 64 íslenskar krónur.   Dr. Strebel sagði að herferðin hefur verið árangursrík því skipuleggjendur hafa unnið með ríkisstjórnum til að minnka útbreiðslu mislinga á meðan margar bólusetningar herferðir hafa verið í gangi.  Markmið herferðarinnar er að ná til barna sem hafa aldrei fengið bólusetningu gegn mislingum.

Kirkjan, segir hann, hefur verið „frábær samstarfsaðili“ í framtakinu frá því 2003 og hefur leikið tvö þýðingarmikil hlutverk: „Í fyrsta lagi, sagði hann, hefur kirkjan látið af hendi rakna fjármagn sem hefur aðallega verið notað til þess að festa kaup á bóluefni.  Þó er hlutverk kirkjunnar sem félagsleg liðssöfnun mikilvægari en fjármagnið“, bætir hann við.  

Staðbundnir Síðari daga heilagir, með hjálp þjónustu trúboða kirkjunnar, hafa upplýst fólk um ávinning bólusetningar, rætt við fólkið varðandi áhyggjur þeirra varðandi bólusetningar og upplýsing hvar hægt sé að fá bólusetningu, sagði Dr. Strebel.

Eldmóður „mormóna sjálfboðaliðanna hefur stuðlað að því að 90 til 95 prósent barna á sumum svæðum“ hafa verið bólusett gegn mislingum, segir hann.
Öldungur Demoine Findlay og systir Joyce Findlay, sem eru þjónustu trúboðar kirkjunnar, hafa unnið í sex herferðum gegn mislingum.  Staðbundnir kirkjuþegnar og stuðningur þeirra er í raun styrkur þessara herferða, sagði systir Findlay.

Sem dæmi þá var merki kirkjunnar bætt við allt efni herferðarinnar í Togo því skipuleggjendur herferðarinnar skynjuðu mikilvægi þeirrar þjónustu sem staðbundnir kirkjuþegnar veittu

Að auki, sagði hún, hafa þegnar kirkjunnar upplifað gleði í þjónustu án endurgjalds sem er nokkuð sem er ekki algengt í sumum þjóðarríkjum í Afríku.
Einn ungur maður sagði við sistur Findlay, eftir að hafa unnið í herferðinni, „Mér líður meira eins og þegn kirkjunnar núna.  Mér líður eins og kirkjan sé fjölskyldan mín.  Ég hef gefið af tíma mínum, mér finnst ég vera tengdur kirkjunni.“
Öldungur Terry Morris, sem þjónaði sem þjónustu trúboði kirkjunnar ásamt konu sinni, systur Danne Morris, sagði það vera gefandi að sjá börn hljóta bólusetningu gegn mislingum sem afleiðingu af verkefninu.  Það er jafn gefandi, sagði hann, að sjá þegna kirkjunnar læra að þjóna.

Kalu Iche Kalu, sem er samhæfingarfulltrúi mislinga herferðinnar í Aba Nigeria stikunni, sagði að það væru forréttindi að fá að taka þátt í verkefninu, sem hann kallaði „tækifæri fyrir persónulega tjáningu um kærleika í gegnum þjónustu.“

Á meðan herferðinni stóð, sagði hann, fóru kirkjuþegnar milli húsa og milli samkomustaða þorpanna.  „Í einu smáþorpinu sem við heimstóttum þá sagði okkur kona á miðjum aldri að þrjú af börnum hennar hefðu dáið úr mislingum.  Hún sagði sögu sína af svo miklum þokka og ástríðu að ekki var þurrt auga í húsinu, þar á meðal voru mín augu talin með.  Ég lærði að það er hagsbót fyrir okkur öll þegar við hjálpum öðrum.  Það sem þú gerir fyrir þig sjálfan er farið þegar þú yfirgefur þessa jörð en það sem þú gerir fyrir aðra skilur þú eftir sem arfleið.“

Á árinu 2008 hefur kirkjan eða mun kirkjan taka þátt í herferðum í Togo, Papua Nýju Gínea, Fílabeinsströndinni, Tansaniu, Malawi, Mósambik, Egyptalandi, El Salvador, Hondúras, Guatemala og Benin.

„Það er unaður að sjá þessi litlu börn fá bólusetningu og vita að það mun bjarga lífi þeirra, að vita að þúsundum muni verða bjargað,“ sagði systir Findlay. „Það er ekki vegna okkar eða nokkurs sem við erum að gera, það er vegna sameinaðs framlags alls þess fólks sem vinnur í verkefninu.“