Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 18.04.2011

 

Ársskýrsla greinir frá neyðarhjálp kirkjunnar

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu kom fórnarlömbum náttúruhamfara til hjálpar í  58 löndum á síðasta ári, allt frá Haití til Pakistan og Nýja Sjálands.  Frá því er greint í skýrslu um velferðarþjónustu og neyðaraðstoð fyrir árið 2010, og að kirkjan hafi komið til hjálpar í 119 náttúruhamförum og veitt milljónir dollara til neyðaraðstoðar.

Um 300.000 manns týndu lífi í yfir 350 nátthamförum á árinu 2010, sem er hæsta dánartala á síðasta aldarfjórðungi. Þær hamfarir voru jarðskjálftar, flóð, aurskriður, flóðbylgjur, sjúkdómar, hitabylgjur og eldgos, sem náðu til yfir 200 milljónir manna og ollu yfir 100 milljarðar dollara skaða. 

Hér er getið um nokkrar þeirra hamfara sem kirkjan kom að með neyðaraðstoð:

Jarðskjálftar

Hæstu dánartölurnar voru af völdum jarðskjálfta - einkum hinum hrikalega Haití jarðskjálfta í janúar 2010, sem varð um 230.000 manns að bana í og við Port-au-Prince. Aðrir stórir skjálftar voru í Concepción, Chíle, og Christchurch, Nýja Sjálandi.

Kirkjan sendi matvæli og neyðarbirgðir, ásamt fleiri hjálparstofnunum, í öllum þessum tilvikum. Á Haití voru einnig hjúkrunarsjálfboðaliðar sem aðstoðuðu þær þúsundir sem slösuðust. Kirkjan heldur áfram að veita hjálp á Haití til endurbyggingar, hvað m.a. varðar atvinnu, menntun og bráðabirgðahúsaskjól. 

Flóð og aurskriður

Þótt flóðin hafi ekki ollið jafn miklu tjóni, voru þau tíðustu hörmungar ársins 2010 og ollu miklu manntjóni og milljónir urðu að hverfa frá heimilum sínum. Einungis í Pakistan létust 2000 manns og 20 milljónir höfðu tjón af. Margra vikna regn olli einnig flóðum og aurskriðum víða um Mið-Ameríku og norðurströnd Suður-Ameríku og hafði áhrif á um 2.5 milljón íbúa í Kólombíu og Venesúela.

Hinu megin á jarðarkringlunni áttu einnig Kína, Thaíland, Myanmar, Víetnam og Filippseyjar í stríð við flóð sem samtals ollu dauða yfir 1800 manns. Og í Bandaríkjunum upplifðu íbúar í Tennessee, Kentucky og Missouri alvarlegustu flóð sem komið höfðu í nokkra áratugi.

Kirkjan veitti neyðaraðstoð með því að gefa þeim matvæli, vatn, hreinlætispakka, ábreiður, fatnað og fleiri vörur sem urðu fyrir hústjóni. Kirkjan gaf hreinsunarpakka og skipulagði sjálfboðastarf til að hjálpa við hreinsunarverkið í kjölfarið. 

Kólera

Á síðasta ársfjórðungi 2010 komu upp tveir alvarlegir kólerufaraldrar - hinn fyrri á norðurhluta Artibonite-svæðisins í Haití, sem breiddist hratt út um öll landsvæði eyjanna og ollu ríflega 3000 dauðsföllum fyrir árslok. Hinn síðari braust út á Daru-svæðinu í Papua, Nýju Gíneu. Hann var ekki jafn mannskæður en ollu 300 dauðsföllum.

Kirkjan brást við þessum faröldrum með því að sjá fyrir faglegri hjúkrun og senda nýja hjálparpakka til lækningar og varnar gegn kólerunni. Í pökkunum voru sápur, vatnhreinsitæki og salt til að koma í veg fyrir ofþornun. Kirkjan gaf einnig stórt vatnshreinsikerfi, þúsundir flöskusía og fræðsluefni um kóleru.

Allt er þetta mögulegt vegna rausnarlegra framlaga meðlima og vina kirkjunnar. Öll framlög fara óskipt til hjálpar nauðstöddum.