Fréttir - 31.01.2008 |
Með æðstu stjórn í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu fer Æðsta forsætisráðið, sem í eru forsetinn og tveir ráðgjafar hans, eða ráðgefendur. Þetta þriggja manna ráð hefur yfirumsjón með starfi kirkjunnar í öllum stefnumarkandi málum, skipulagsmálum og allri stjórnun.
Næstráðandi við stjórnun kirkjunnar er Tólfpostularáðið. Þeir þjóna undir stjórn Æðsta forsætisráðsins og bera þunga stjórnunarábyrgð, yfirumsjón með skipulagsþróun og uppbyggingu kirkjunnar um allan heim. Síðari daga heilagir virða Æðsta forsætisráðið og postulana tólf sem spámenn er hljóta guðlega opinberun og innblástur til stjórnunar kirkjunni.
Tilnefning nýs forseta Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu fylgir ákveðinni reglu --- undursamlegri í nútíma heimi --- sem kemur í veg fyrir hvern minnsta vott af þrýstingi eða framapoti. Í augum kirkjuþegna er það guðlega opinberað ferli, án alls kosningaráróðurs eða baktjaldamakks.
Það sem meira er, það er ekki aðeins uppbygging og skipulag kirkjunnar sem ræður þessu ferli. Þar er einnig um að ræða þá rótgrónu hefð í kirkjunni, að persónuleg vænting um leiðtogastörf á hvaða stigi sem er sé óviðeigandi. Þess í stað er lögð áhersla á persónulegan verðleika og auðmjúkan vilja til að þjóna þegar um það er beðið.
Þegar forseti Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu fellur frá gerist eftirfarandi:
1. Æðsta forsætisráðið leysist sjálfkrafa upp.
2. Ráðgjafarnir tveir í Æðsta forsætisráðinu taka aftur sætisröð sína í Tólfpostularáðinu. Sætisröðin ræðst af því hvenær viðkomandi var vígður til Tólfpostularáðsins, en ekki af aldri hans.
3. Í Tólfpostulasveitinni eru nú 14 postular og yfir henni sá þeirra sem þar á lengstan starfsaldur og tekur hann við stjórnun kirkjunnar.
4. Yfirpostulinn er í forsæti á fundi Tólfpostulasveitarinnar þar sem ræddar eru tvær mögulegar tillögur:
i. Ætti að endurskipuleggja Æðsta forsætisráðið á þeirri stundu?
ii. Ætti kirkjan að starfa undir stjórn Tólfpostulasveitarinnar?
5. Eftir umræður er formleg tillaga borin fram og samþykkt af Tólfpostulasveitinni.
6. Ef samþykkt er tillaga um að endurskipuleggja Æðsta forsætisráðið, velur Tólfpostularáðið einróma hinn nýja forseta kirkjunnar. Nýi forsetinn velur tvo ráðgjafa úr hópi postulanna tólf og þeir þrír verða hið nýja Æðsta forsætisráð. Í allri sögu kirkjunnar hefur sá postuli sem lengst hefur starfað sem slíkur orðið forseti kirkjunnar þegar Æðsta forsætisráðið hefur verið endurskipulagt.
7. Eftir að Æðsta forsætisráðið hefur verið endurskipulagt, er sá postuli sem starfað hefur næst lengst sem slíkur studdur sem forseti Tólfpostularáðsins. Eina undantekningin er þegar sá sem næstlengst hefur starfað sem postuli er kallaður í Æðsta forsætisráðið sem ráðgjafi, en þegar það gerist verður sá þriðji í starfsröð starfandi forseti hinna Tólf.
8. Forseti Tólfpostulasveitarinnar, ásamt hinum postulunum, setur nýjan forseta kirkjunnar í embætti með formlegri handayfirlagningu.
Síðan kirkjan var formlega stofnuð hinn 6. apríl 1830 hafa verið 15 forsetar, þar með talinn Gordon B. Hinckley forseti.