Fréttir - 27.07.2010 |
Allt sem þarf til að góðir hlutir geti gerst er fús nemandi, áhugasamur kennari og farsími gæddur fjölda valmöguleikum. Guillaume Mercier, sem var í herberginu sínu í sjúkrahúsi Marseille-borgar, Frakklandi, velti fyrir sér hvort hann gæti á einhvern hátt tekið þátt í vikulegum námsbekk trúarskólans. Faðir Guillaume, sem trúði því statt og stöðugt að sonur sinn gæti tekið þátt með því að nota síma, hringdi í trúarskólakennarann og ráðstafanir voru gerðar.
Kennarinn, Christine Jouffray, hringdi í Guillaume í sjúkrahúsinu og notaði farsímann sinn til að hann gæti verið með í námsbekknum. "Þökk sé þessari nýju tækni að gátum notið þess að hafa með okkur í kennslunni hans dásamlega anda. Guillaume var með okkur líkt og hann væri í kennslustofunni; sögur voru sagðar, góðlátleg stríðni var viðhöfð og fagnaðarerindið var miðlað," sagði hún.
Þegar kennslan hófst hringdi síminn og hann gat verið með í lexíunni. "Mér fannst næstum sem ég væri þarna," sagði Guillaume. "Stundum heyrði ég ekki það sem sagt var, en það stóð ekki í vegi fyrir að ég fann fyrir heilögum anda. Annað sem ég fann sterklega fyrir, var ástúð bræðra minna og systra í trúarskólanum."
Faðir Guillaume, Dominique Mercier, sagði: "Ég gleymi aldrei þessari reynslu, sem hófst á einfaldri hugmynd og lauk á andlegan hátt. Þökk sé kennara og bekkjarfélögum Guillaume, sem voru svo fús að laga sig að aðstæðunum. Það veitti mér gleði að horfa og hlusta á Guillaume taka þátt í kennslunni. Það var líkt og andi trúarskólans fyllti herbergi Guillaume."