Fréttir - 01.06.2011 |
Yfir 3.200 ungt fólk, á aldrinum 14 til 18 ára, sem talar 18 mismunandi tungumál, frá 9 landsvæðum í 6 Evrópulöndum, mun koma saman á ráðstefnum sem einkum er helgað æskulýðnum (EFY). Fullra fimm daga dagskrá sem hefst á mánudagsmorgni og lýkur árla á laugardagsmorgni, veitir þátttakendum tækifæri til lærdóms og nýrra vináttusambanda með því að sækja saman námsbekki, námskeið og sérstaka trúarfræðslu að kvöldi til.
EFY er æskulýðsdagskrá sem hefur að marki að hvetja, aðstoða og leiða hina ungu þátttakendur í viðleitni þeirra til að læra meira um sig sjálfa og sambönd sín við aðra. Áhersla er lögð á að bjóða þeim að staðfesta og hagnýta sér kristilegar kenningar í daglegu lífi. Stuðningsaðili dagskrárinnar er Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu (mormónar). Æskulýð kirkjunnar og vinum hans af öllum trúarbrögðum er boðið að taka þátt.
Frá Englandi til Finnlands, Þýskalandi til Albaníu, mun þetta evrópska unga fólk streyma til að koma saman og verða hluti af 50.000 æskufólki víðsvegar að úr heiminum til þátttöku í sumardagskrá EFY. Í eina annasama viku mun æskufólk frá mörgum mismunandi menningarlöndum leggja áherslu á að rækta sjálft sig og þjóna öðrum. Svo vitnað sé í orð eins þaulreynds leiðtoga, þá mun æskufólkið "taka líkamlegum, vitsmunalegum, félagslegum og andlegum framförum."
Æskufólki frá eftirtöldum löndum er boðið að sækja EFY ráðstefnuna (í sumum tilvikum er aðeins um tiltekna landshluta að ræða): Albanía, Belgía, Bosnía, Þýskaland, England, Finnland, Frakkland, Grikkland, Ísland, Írland, Kosovo, Króatía, Malta, Moldova, Norður-Írland, Austurríki, Pólland, Rúmenía, Serbía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Skotland, Sviss, Tékkland og Kýpur.
Hápunktur vikunnar er þátttaka í þjónustuverkefnum sem tengjast aðstoð við aðra, ýmsum sýningum, dans- og tónlistardagskrá og formlegum eða óformlegum kennslustundum. Á kvöldin er komið saman í fjölskylduhópum til að miðla af eigin tilfinningum, lærðum hugmyndum og mynda ný, og í mörgum tilvikum, alþjóðlega vinabönd. Kvöldvökurnar eru aðallega í umsjá ungra leiðbeinenda á aldrinum 20 til 30 ára, sem eru jákvæðar fyrirmyndir fyrir æskufólkið. Fullorðnir leiðbeinendur eru i forsvari allra kvöldvakanna.
Sumt unga fólkið hefur sagt að það hafi ekki aðeins verið á ráðstefnu, heldur líka farið heim með markmið sem stuðla að hamingju þeirra í þessu lífi. Það einsetti sér að gera breytingar á eigin lífi til að verða kristilegri. Ein 15 ára gömul stúlka sagði: "Mér varð ljóst hve mjög mig langaði til að láta alls staðar gott af mér leiða. Mig langar að þjóna fólki. Ég veit að með Guðs hjálp er allt mögulegt. EFY veitti mér kjark til að sýna styrk. Ég upplifði tímabil efasemda og vanmáttar, en EFY opnaði augu mín. Mig langar að sýna fjölskyldu minn, móður minni, og vinum mínum hver þakklát ég er fyrir þau. Upplifun mín á EFY veitti mér þrá til að lifa lífinu og verða sá einstaklingur sem Guð óskar að ég verði."
Þjónustuverkefni, áhersla á þá lífsspeki að gefa af sjálfum sér til að hjálpa öðrum, er hinni rauði þráður ráðstefnuvikunnar. Í Frakklandi kom æskufólkið saman til að búa til 130 ungbarnaábreiður, sem síðar voru færðar fæðingardeild Chauny-sjúkrahússins. Þegar yfirmaðurinn þar tók við þeim greindi hann frá niðurskurði ríkisfjármála, sem hefði leitt til þjónustuskerðingar, einkum á fyrirburadeildinni. Hann sagði síðan: "Innilegar þakkir fyrir gjöfina."
Þegar Christian Fingerle, svæðisleiðtogi kirkjunnar, var spurður hvers vegna kirkjunni finndist þörf á slíkri dagskrá fyrir æskufólk innan og utan kirkju, sagði hann: "Æskufólkið vill vita hvers vegna þess sé vænst að það geri ákveðna hluti og forðist ákveðna breytni. Slíkum spursmálum er auðveldlega svarað á EFY."
EFY tekur innilega á móti æskufólki allra trúfélaga og sér því fyrir hagnýtum og skemmtilegum tækifærum til að læra hvernig hafa á áhrif á jafnaldra sína til að taka réttar og skynsamar ákvarðanir. Í fyrstu kann svo að virðast að samblöndun margra tungumála og menningarheima sé ‚babelistik,' en ekki verður horft fram hjá árangrinum. Ein 15 ára gerði samantekt á reynslu sinni með því að segja: "Ég er ekki í kirkjunni. Ég vil þakka vini mínum Jade fyrir að bjóða mér á EFY. Reynsla mín á EFY hefur verið einstök. Ég veit að Guð elskar okkur. Ég skynjaði það í félagsstarfinu, kennslunni, kvöldvökunum, tónlistardagskránni og þjónustu allra EFY leiðtoganna."
Foreldri nokkurt sem sá breytinguna á dóttur sinni sem hafði verið á EFY ráðstefnu, heyrðist segja: "EFY er einfaldlega frábært framtak og við vonum innilega að það haldi áfram og að fjölda æskufólks muni enn gefast kostur á þátttöku!"