Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 20.12.2008

 

Aldargamla baráttan snýst um gott og illt

Öldungur M. Russell Ballard talar til safnaðar trúarskólanema á kvöldvöku í Hunstman miðstöðinni í University of Utah. Byggingin er nefnd eftir öldungi Jon M. Huntsman eldri, svæðisvaldhafa, sem einnig flutti ræðu.

Í dag eru ungu þegnar kirkjunnar að berjast „í sömu baráttu sem háð hefur verið frá grundvöllun veraldar,“ sagði Öldungur M. Russell Ballard úr Tólfpostulasveitinni við trúarskólanema þann 16. nóvember.

Öldungur Ballard flutti ræðu á kvöldvöku trúarskóla Salt Lake háskólans, sem staðsettur er við University of Utah háskólasvæðið, sex Salt Lake háskóla stikur og aðrar stikur og trúarskólar sem eru nálægt háskólanum.  Þúsundir voru saman komnir til að taka þátt í fundinum er haldinn var í Huntsman miðstöðinni sem er stór salur þar sem íþrótta viðburðir og aðrir sérstakir viðburðir eru haldnir.

Öldungur Jon M. Huntsman eldri, svæðisvaldhafi sjötíu, iðnjöfur og mannvinur, sem byggingin er nefnd eftir, flutti einnig ræðu.

Öldungur Ballard sagði að í smáatriðum væri nútíminn öðruvísi vegna tækninnar og annarra hluta en orrustan hins vegar sú sama.

„Orrustan snýst um hjörtu og sálir barna okkar himneska föðurs gegn Satani, hinum mikla svikara, faðir allra lyga,“ sagði hann.  „Eins og alltaf hefur verið þá er þessi orrusta háð á orrustuvelli siðferðislegs valfrelsis og sjálfræðis.  Þrátt fyrir tæknilegs eða stjórnmálalegs umhverfis hvers tíma þá snýst máli um þetta: Hvernig ætlar þú að nota Guð gefið valfrelsi þitt?  Ætlar þú að velja að fylgja Drottni eða ætlar þú að velja að fylgja Satan?  Þetta er í raun ekki flóknara.  Það skiptir ekki máli hversu mikið við reynum að réttlæta eða rökstyðja val okkar, því málið snýst hreinlega um að velja hið góða fram yfir hið illa.“

Öldungur Ballard sagði ungu kirkjuþegnunum að á þessum tímapunkti lífs síns væru þau að setja á stofn mynstur lífsins sem mun vara alla ævi.
 
Sem fyrrverandi trúboðsforseti þá fékk hann heimsókn frá einum af fyrrverandi trúboða sínum fyrir nokkru.  Maðurinn taldi sig vera að missa vitnisburð sinn.  Hann hafði verið að lesa bókmenntir sem eru á móti kenningum kirkjunnar og hafði spurningar sem biskup hans og stikuforseti gátu ekki svarað.

Öldungur Ballard sá að það myndi taka nokkurn tíma til að rannsaka svörin við þessum spurningum hans og bað því manninn að koma aftur eftir 10 daga. Er hann var að fara spurði Öldungur Ballard hann hversu langt það hefði verið síðan hann hefði lesið í Mormonsbók.  Það hafði verið langur tími.  Öldungur Ballard fékk manninn til þess að lofa að lesa að minnsta kosti í eina klukkustund í Mormónsbók á dag næstu 10 daga.

„Tíu dögum síðar kom maðurinn aftur,“ Öldungur Ballard hélt áfram.  „Ég náði í blöðin mín og byrjaði að svara manninum en þá sagði hann, 'Forseti, þú þarft ekki að svara spurningum mínum. '  Síðan fóru tárin að renna niður kinnar hans er hann útskýrði, 'Forseti, ég veit að Mormónsbók er sönn.  Ég veit að Joseph Smith er spámaður.'   Ég sagði, 'Jæja, ég er mjög ánægður að heyra þetta en þú færð að hlusta á svörin við þessum spurningum þínum samt sem áður.  Það tók mig langan tíma að finna þau og nú þú færð þessi svör frá mér.'  Ég spurði, 'Öldungur, hvað hefur þú lært frá þessu?'  Og hann svaraði, 'Að veita Drottni jafn mikinn tíma. '“

Öldungur Ballard sagði söfnuðinum að þau yrðu aldrei reynd umfram getu sína til þess að veita mótspyrnu ef þau gæfu Drottni jafn mikinn tíma með því að nema, íhuga og biðja varðandi fagnaðarerindið eins og það er í stöðluðu ritningum kirkjunnar.

„Við lifum á tímum þegar við verðum að leggjast við andlegt akkeri,“ sagði hann.  „Þú og ég verðum að leggjast við akkeri himnesks sannleikar sem hafa komið til okkar í gegnum spámanninn Joseph Smith.  Við þurfum að leggjast við akkeri reglna í sæluáætlun Guðs þar sem Drottinn Jesú Kristur sem miðbik.“
Öldungur Ballard fullvissaði unga fólkið um kærleika og bænir leiðtoga þeirra þeim til handa eftir að hafa undirstrikað að styrkur kirkjunnar hefur ætíð verið vitnisburður einstaklinga og þjónusta kirkjuþegna.

„Þið megið einnig vita að við skiljum áskoranir ykkar og þið megið vera viss um að þrátt fyrir kringumstæður augnabliksins þá er hvert ykkar mjög dýrmætt í augum himnesks föður ykkar og hans elskaða sonar, Drottins Jesú Krists.“
Hann talaði um þörf fyrir framþróun, að fjölskyldan bindist musterissáttmálum.
„Treystið mér þegar ég segi ykkur að þegar þið verið 80 ára gömul þá mun félagi þinn, börn þín og fjölskylda verða ykkur uppspretta mikillar gleði og hamingju.“ sagði hann.  Hann bætti við að enginn sem heldur áfram að vera trúfastur fagnaðarerindinu mun verða neitað nokkurri eilífðri blessun þótt sumir fái ekki notið réttlátrar þrár sinnar í dauðlegu lífi.

Öldungur Ballard gerði stundarhlé á ræðu sinni sem hann hafði undirbúið og hvatti ungu hlustendur sína að forðast klámefni og aðra slæma hluti.
„Ef þú ert að fikta við slíkt á einhvern hátt þá hvet ég þig, í nafni Jesú Krists og sem postuli Drottins, til þess að gjöra iðrun og segi við þig með öllum þeim kærleika og valdi sem ég hef að stoppa strax í kvöld.“

Eftir að hafa vitnaði í Joseph og Hyram Smith sagði öldungur Ballard, „Þegar ég stóð við legsteina þessara göfgu manna, fannst mér eins og þeir myndu vilja að ég ráðleggði öllum kirkjuþegnum að halda sér fast við hinar einföldu grundvallarreglur fagnaðarerindisins.  Nemið í ritningunum, leitið til leiðtoga kirkjunnar á þessum erfiðu tímum.  Systkin, passið ykkur á flokkadráttum, uppskiptingum og deilum sem eru meðal okkar í dag.  Haldið boðorðin svo heilagur andi megi vera með ykkur er þið leitið eftir sannleika og þekkingu.“

 Hann varaði við því að vera lærisveinn kostar fórnir og sagði, „Það hefur aldrei verið auðvelt að koma til Krists.  Falsspámenn bíða í felum eftir að grípa hina ógætnu.  Það eru fórnir sem eru gerðar af þeim er leitast eftir að þekkja og fylgja frelsaranum og stundum fylgja þessum fórnum sársauki og tár.  En gleðin við að vera 'að starfa af kappi' í heilaga verki hans er yfir allt annað hafið.“

Öldungur Huntsman, sem deilir barnabörnum með öldungi Ballard í gegnum hjónaband milli sonar annars þeirra og dóttur hins, sagði hann vera kæran vin til fjölda ára og saman hafi þeir ferðast kringum heiminn fjölmörgum sinnum.
Hann sagði vera miklar áskoranir í heiminum í dag en það væru einnig dásamleg tækifæri.

„Það er á tímum streitu, erfiðleika og áskorana sem persónuleiki okkar er mótaður í hjörtu og huga okkar,“ sagði hann.  „Við ákvörðum heilindi okkar.  Við ákvörðum hver við erum og hverjum við viljum líkast eftir í lífum okkar.“
Hann sagðist hafa lært mikið frá frábærum leiðtogum sem hann hefur þekkt, þar á meðal Howard W. Hunter forseta.

Hann sagði frá einu atviki er hann var að keyra framhjá heimili Hunter forseta fékk hann leiðbeiningu um að stoppa og athuga hvernig honum liði.  Forseti kirkjunnar bað hann um blessun.

„Hann [Hunter forseti] sagði, 'Huntsman forseti, í dag fékk ég slæma hugsun gagnvart öðrum einstaklingi.  Þessi hugsun hefur gert mig veikan líkamlega.  Ég þarf á prestdæmisblessun að halda vegna þess að ég get ekki haldið áfram að starfa ef ég er með slæmar hugsanir gagnvart einhverjum manni eða konu á jörðunni.'“

Öldungur Huntsman sagði að atvikið hefði fengið hann til þess að hugsa um setningu frelsarans: blessaðir eru hinu hjartahreinu, „því ég var í nálægð einhvers sem var hjartahreinn.“