Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 15.02.2008

 

Æviágrip Henrys B. Eyring forseta

Henry B. Eyring forseti var kallaður sem fyrsti ráðgjafi í Æðsta forsætisráði Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, frá 3. febrúar 2008. Hann hafði áður þjónað sem annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, frá 6. október 2007 í tíð Gordons B. Hinckley forseta.Hann var tilnefndur sem meðlimur Tólfpostulasveitar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu 1. apríl 1995, eftir að hafa þjónað sem meðlimur fyrstu sveitar hinna Sjötíu frá 3. október 1992.

Eyring forseti hafði áður þjónað sem stjórnarmaður fræðsludeildar kirkjunnar frá því í september 1992. Hann þjónaði þar áður sem fyrsti ráðgjafi í Yfirbiskupsráðinu frá apríl 1985 til september 1992 og sem stjórnarmaður fræðsludeildar kirkjunnar frá september 1980 til apríl 1985 og einnig frá september 1992 til janúar 2005. 

Eyring forseti var yfirmaður Ricks-framhaldsskólans í Rexburg, Idaho, frá1971 til 1977. Hann var í kennaraliði Graduate School of Business í Stanford-háskóla frá 1962 til 1971.

Hann hefur B.S. gráðu í eðlisfræði frá Utah háskólanum og meistaragráðu í viðskiptastjórnun og doktorsgráðu í viðskiptastjórnun frá Harvard háskólanum.

Hann fæddist í Princeton, New Jersey, 31. maí 1933  og hefur þjónað í kirkjunni sem svæðisfulltrúi, meðlimur aðalnefndar sunnudagaskólans og sem biskup.

Öldungur Eyring er giftur Kathleen Johnson og eiga þau saman fjóra syni og tvær dætur.