Boðskapur frá leiðtogum kirkjunnar - 27.05.2011 |
"Hlýðni verður að koma af sjálfsdáðum. Hana má hvorki þvinga, né neyða fram. Engri nauðung má beita menn til að þeir hlýði vilja Guðs. Þeir verða að hlýða vegna þess að þeir vita að það er rétt, þrá að gera það og hafa unun af því.Guð hefur dálæti á hinu fúsa hjarta".
Kenningin
Við komum til jarðarinnar til að sannreyna að við værum fús til að halda boðorð himnesks föður.Boðorðin eru okkur gefin vegna þess að himneskur faðir elskar okkur.Hlýðni okkar við boðorðin er svo lýsandi fyrir elsku okkar til hans.
Þeim sem halda boðorðin er heitið stundlegum og andlegum blessunum2 og af ritningunum vitum við að Drottinn greiðir okkur veg til að halda öll hans boðorð.
"Og svo bar við, að ég, Nefí, sagði við föður minn:Ég amun fara og gjöra það, sem Drottinn hefur boðið, því að ég veit, að Drottinn gefur mannanna börnum engin bfyrirmæli án þess að cgreiða þeim veg til að leysa af hendi það, sem hann hefur boðið þeim"1 Ne 3:7
Kenningu þessa er einfalt að skilja, yndislegt að íhuga og magnað að tileinka sér.Hún er æðsta lögmál himins!Fyrir hlýðni hljótum við að lokum eilíft líf eða, með öðrum orðu, líf í návist Guðs.
Áskorunin
Við erum svo oft upptekin af því sem heimsins er að við gleymum að halda vöku okkur. Það getur leitt til þess að við reynum að lifa beggja megin línunnar.Það getur leitt til þess að við óhlýðnumst einu sinni eða tvisvar - það hefur alvarlegar stundlegar og andlegar afleiðingar í för með sér.
Enginn atæli yður með marklausum orðum, því að vegna þessa kemur breiði Guðs yfir þá, sem chlýða honum ekki.Efe 5:6
Boðið
"Því sagði Jesús: Þegar þér hefjið upp Mannssoninn, munuð þér skilja, að ég er sá sem ég er, og að ég gjöri aekkert af sjálfum mér, heldur btala ég það eitt, sem cfaðirinn hefur dkennt mér.Og sá sem asendi mig, er með mér. Hann hefur ekki látið mig beinan, því ég cgjöri ætíð það sem honum dþóknast.Jóh 8:28?29
Fylgjum fordæmi Krists og verðum fús til að hlíta leiðsögn lifandi spámanna okkar og gera þá einföldu hluti sem færir okkur og fjölskyldu okkar blessanir hamingju og friðar:
1. Biðja ætíð kvölds og morgna.
2. Lesa ritningarnar dag hvern.
3. Sækja útsendingar og læra boðskap aðalráðstefna.
Þegar við gerum þetta, munum við hljóta leiðsögn og innblástur um hvernig takast má við erfiðleika lífsins og styrk til að standast daglegar freistingar.
Ég er þakklátur fyrir kærleika föður okkar á himnum og vitneskju mína um að hann þráir að blessa okkur. Þær blessanir verða okkar þegar við höldum boðorðin!
Í nafni Jesú Krists, amen.