Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 05.09.2010

 

200 milljónir fleiri ættfræðiheimildir líta dagsins ljós

Ættfræði er áhugamál margra víða um heim.

Þegar ættfræðisamfélag þjóðanna kom saman í Knoxville, Tennessee, á Sambandsráðstefnu ættfræðisamfélaga í síðasta mánuði, til að miðla heilráðum og ábendingum um hvernig best er að leita að torfundnum áum, var vissulega glatt á hjalla yfir óvæntri gjöf frá FamilySearch, sem er leiðandi í varðveislu og aðgengi ættfræðiheimilda. FamilySearch tilkynnti að yfir 200 milljónir nýrra ættfræðiheimilda frá 18 löndum væru nú aðgengilegar á Alnetinu í gagnasafni stofnunarinnar. Þessar nýju heimildir eru viðbót við þær hundruð milljóna heimilda sem FamilySerch veitti aðgengi að fyrr á þessu ári á álíka uppákomu í Salt Lake City, Utah. Fjöldi heimilda sem aðgengilegur er á vefsíðunni er um 700 milljónir.

Síðasta heimildasafnið geymir 53 nýjar uppfærslur frá Bandaríkjunum og yfir 100 milljónir nýrra heimilda frá Evrópu, Skandinavíu og Mexíkó. Safnið frá Bandaríkjunum geymir manntal frá árinu 1910 og fylkisskýrslur um fæðingardaga, giftingardaga og dánardaga. Í því eru 10 milljónir nýrra heimilda frá New Jersey og Michigan, 4 milljónir frá Tennessee, 41 milljón merkilegra heimilda frá Massachusetts og mörgum öðrum fylkjum Bandaríkjanna. 

"Fyrir nokkru einsetti FamilySearch sér að skapa stórbrotið aðgengi að ættfræðiheimildum heimsins á Alnetinu.  Uppfærslur þessar eru hluti af því samfellda verkefni að standa við þá skuldbindingu," sagði Paul Nauta, yfirmaður almannatengsla FamilySearch.  "Við erum bara rétt að byrja," ályktaði Nauta. Í Bandaríkjunum leggur FamilySearch nú áherslu á að setja á stafrænt form og gefa út á Alnetinu alríkis- og fylkismanntöl og fylkisskýrslur um fæðingardaga, giftingardaga og dánardaga.   Þegar þessu framtaki er lokið, mun safnið verða endanlegt með ættfræðiheimildum Bandaríkjanna til könnunar fyrir áhugafólk um ættfræði.   

Auk hins nýja bandaríska safns, var yfir 100 milljónum heimilda bætt við alþjóðasafn FamilySearch á Alnetinu ? sem að öllum líkindum gerir það að stærsta alþjóða ættfræðisafni á Alnetinu. Þessi nýi alþjóðlegi gagnagrunnur er byggður á fæðinga-, giftinga- og dánarskýrslum og borgaskýrslum. Farið á FamilySearch.org, smellið á Search Records og síðan á Record Search til að sjá ítarlegan lista þessa gjaldfrjálsa safns. Heimildirnar verða brátt einnig aðgengilegar á beta.familysearch.org. 

"Það sem gerir yfirlýsinguna nú jafnvel enn merkilegri, er að FamilySearch notar aðallega vaxandi hóp sjálfboðaliða við að vinna að því verkefni að stafræna og skrá heimildirnar til nota á Alnetinu. Það skýrir líka að stórum hluta ástæðu þess að við getum haft þetta gjaldfrjálst, ástæðu þess að gestir þurfa ekkert að greiða fyrir þjónustuna," sagði Nauta. Nú eru 350.000 sjálfboðaliðar víða um heim sem tengjast FamilySearchIndexing.org og nota einkaforrit FamilySearch til að skoða heimildarskjöl á stafrænu formi, af persónulegum áhuga, og skrá í þau upplýsingar að eigin vilja. FamilySearch býr síðan til atriðaskrá að heimildasafninu sem almenningur getur leitað eftir endurgjaldslaust á Alnetinu.