Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage



MUSTERI OG ÆTTFRÆÐI

Í musterum Síðari daga heilagra fer ekki fram venjubundin tilbeiðsla. Musteri eru reist í þeim tilgangi að framkvæma þar helgiathafnir til að sameina fjölskyldur um alla eilífð. Musterin sýna best hve ríka áherslu Síðari daga heilagir leggja á fjölskyldur.

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu viðurkennir mikilvægi borgaralegs hjónabands og lítur á það sem lögbundinn samning til varðveislu siðgæðis. Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu kennir einnig að dauðinn bindi enda á slíkt hjónaband, og því hafi það ekkert gildi handan grafar. Hjónabönd og fjölskyldubönd geta aðeins varað handan grafar, ef hjón láta innsigla sig hvort öðru og börnum sínum um eilífð. Slíkar hjónavígslur er nauðsynlegt að framkvæma með valdi hins heilaga prestdæmis í helgu musteri.

Þau börn sem Síðari daga heilagir eignast eftir hjónavígslu í musteri, innsiglast sjálfkrafa foreldrum sínum í eilíf fjölskyldubönd. Hjón sem verða meðlimir kirkjunnar eftir borgaralega hjónavígslu geta farið í musterið á tilsettum tíma til að innsiglast. Öll börn sem þau hafa eignast fyrir þann tíma, mega einnig sækja musterið heim með foreldrum sínum til að innsiglast þeim í látlausri helgiathöfn.

Síðari daga heilagir trúa innilega að fjölskyldan sé eilíf í eðli sínu og bera því mikla lotningu fyrir musterum. Þeir trúa einnig að hjón verði að sýna hvort öðru fyllstu tryggð allt hjónaband sitt, til þess að tryggja réttmæti innsiglunarinnar.

Síðari daga heilagir trúa einnig að lifandi niðjar geti framkvæmt hjónavígslur þessar og aðrar helgiathafnir fyrir látin ættmenni sín. Yfirleitt eru Síðari daga heilagir staðgenglar fyrir eigin ættmenni í helgiathöfnum þessum, sem binda að eilífu saman eiginmenn og eiginkonur og foreldra og börn.

Síðari daga heilagir leggja ríkulega áherslu á ættfræði. Meðlimir telja það trúarlega skyldu sína að bera kennsl á ættmenni sín, svo hægt sé að framkvæma helgiathafnir musterisins fyrir látin ættmenni. Kirkjan á í þessum tilgangi stærsta safn ættfræðiheimilda í heimi. Örfilmur eru varðveittar í neðanjarðarhvelfingum nærri Salt Lake City. Í hundruðum ættfræðisafna víða um heim eru afrit af örfilmum þessum, til að auðvelda öðrum að rekja ættir sínar.

Listinn er langur yfir þau ættfræðigögn sem bjóðast og upplýsingar verða stöðugt viðameiri. Á árinu 1999 bættust við að meðaltali 4.100 örfilmur og 700 ættfræðibækur í hverjum mánuði.

Ef fólk hefur ekki tíma til yfirgripsmikillar ættfræðirannsóknar í Salt Lake City, getur það fengið hjálp við rannsóknir utan ættfræðisafnsins í Salt Lake City. Í 65 löndum eru yfir 4.500 ættfræðisöfn, sem öll eru tengd ættfræðisafninu í Salt Lake City.

Fólk getur, auk þess að nýta sér ættfræðisafnið í Salt Lake City og önnur ættfræðisöfn, tengst vefnum www.familysearch.org en þar eru yfirgripsmikilar ættfræðiupplýsingar sem hægt er að fá aðgang að ásamt því að miðla eigin heimildum. Hafi þeir sem fara á vefinn óskir um að skoða frumgögn, er hægt að fara í næsta ættfræðisafn.