Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage

HJÁLP FYRIR FJÖLSKYLDUR

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu styður viðleitni þegna sinna til efla hjónabandið og fjölskyldulífið með ýmsum hagnýtum verkefnaáætlunum.

Fjölskyldukvöld

Kirkja Jesú Krists hefur frá upphafi tuttugustu aldar hvatt þegna sína til að helga eitt kvöld í viku hverri sérstaklega fyrir fjölskylduna – helst mánudagskvöld. Kvöldið samanstendur til að mynda af trúarfræðslu, sameiginlegri skemmtun, leik, skipulagningu fjölskylduathafna og hressingu. Börnin taka allt frá unga aldri þátt í lexíum og athöfnum. Gildi sem eru mikilvæg fjölskyldunni eru kennd á þennan hátt.

Fjölskyldufundur

Kirkjan mælir með slíkri árangursríkri aðferð í samskiptum foreldra og barna til að bæta fjölskyldulíf og auka skilning.

Heimilis- og heimsóknarkennsla

Karlmenn, tveir og tveir saman (heimiliskennarar, sem vaka yfir öllum í fjölskyldunni), sjá um mánaðarlegar heimsóknir til allra fjölskyldna í kirkjunni, ásamt konum (heimsóknarkennurum, sem styðja konuna á heimilinu).

Samkomur á sunnudögum

Í sunnudagaskóla, á karlafundum (prestdæmisfundum), kvennafundum (Líknafélagsfundum) og barna- og ungmennafundum (í Barnafélagi, Piltafélagi og Stúlknafélagi), er kennsla og umræður um efni sem tengist hjónabandinu og fjölskyldunni.

Kvöldvökur

Á umræðukvöldum ákveðinna hópa er stundum fagfólk sem fjallar um efni er tengist hjónabandi og fjölskyldu.