Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu gefur þegnum sínum kost á að stofna til eilífs hjónabands sem varir „um tíma og alla eilífð“ en ekki „uns dauðinn aðskilur.“
Kristur sagði við Pétur: „Ég mun fá þér lykla himnaríkis, og hvað sem þú bindur á jörðu, mun bundið á himnum, og hvað sem þú leysir á jörðu, mun leyst á himnum“ (Matteus 16:19). Samkvæmt þessum orðum er mögulegt að stofna til hjónabands með guðlegu valdsumboði. Eilíft hjónaband varir einnig í næsta lífi og fjölskyldan getur átt ævarandi tilurð.
Forsenda þessa er musteri eða „Hús Guðs,“ en þar er hjónasvígslan framkvæmd, persónulegur verðugleiki, sem byggður er á kristilegum reglum, og prestdæmisvald (sjá
Musteri). Allir í fjölskyldunni eiga rétt á þessum möguleika eilífðar undir sömu skilyrðum.