Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage



MÖGULEIKAR Á ALNETINU

FamilySearch (www.familysearch.org), ættfræðiþjónustan á alnetinu er aðgengileg fyrir heim allan og er haldið úti af Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í þeim tilgangi að aðstoða fólk við að leita að og miðla ættfræðiheimildum. Vefsíðan er umfangsmesta og vinsælasta ættfræðisíðan á alnetinu sem býður upp á eftirtalið:

Í tengingunni "Search for Ancestors" (leit að áum), getur fólk innritað upplýsingar um áa sína til að finna út hvort einhverjar skrár á vefsíðum alnetsins, í gagnasafni eða heimildarskjölum sem ánöfnuð hafa verið ættfræðiþjónustunni, innihalda upplýsingar um áana.

Í tengingunni "Browse Categories" (skoðunarflokkar) getur fólk leitað upplýsinga um efnisatriði ættfræðinnar.

Í tengingunni "Collaborate with Others" (gagnamiðlun) getur fólk miðlað sín á milli upplýsingum með tölvupósti.

Family Search -- Tölfræðilegar staðreyndir um ættfræðirannsóknir

  • Viðmiðunardagur 24. maí 1999
  • Fjöldi nafna í aðgengilegu tölvugagnasafni 957 milljónir
  • Fjöldi smella frá viðmiðunardegi 10.3 milljarðar
  • Fjöldi gesta frá viðmiðunardegi 143 milljónir
  • Fjöldi skoðaðra vefsíða frá viðmiðunardegi 2.1 milljarðar
  • Meðalfjöldi smella á degi hverjum 14 milljónir
  • Meðalfjöldi gesta á degi hverjum 130.000
  • Meðalfjöldi skoðaðra vefsíða á degi hverjum 3.5 milljónir
  • Fjöldi skráðra notenda 1.008.000