Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage



FYRSTU SKREFIN

Ættarrannsóknir skiptist í sex hluta. Hver hluti er stuttlega útskýrður hér á eftir:

Hluti 1. Rifjaðu upp það sem þú veist um áa þína.

Byrjaðu á að rifja upp það sem þú veist um hvern ættingja til að auðkenna hann. Hvern einstakling er hægt að auðkenna með eftirtöldum upplýsingum:

  • Nafn
  • Aðrir í fjölskyldu hans/hennar
  • Staðir og mikilvægar dagsetningar, t.d. fæðingardagur, giftingardagur og dánardagur
  • Bær þar sem áar bjuggu
  • Atvinna

Skráðu upplýsingar um áa á eyðublaðið Áatal eða í tölvuforrit. Það auðveldar skipulag og alla skráningu. Hægt er að verða sér úti um grunnforrit án endurgjalds á vefsíðunni www.familysearch.org.

Hluti 2. Nýttu gögn á heimilinu  

Leitaðu gagna á heimili þínu sem í gætu verið upplýsingar sem vantar um ættingja.

Gagnleg skjöl sem innihalda upplýsingar um fæðingardaga, giftingardaga og dánarvottorð; einnig ættarbiblíur, jarðarfarardagskrár, andlátstilkynningar, giftingarboðskort, fjölskylduskrár og ættarkort.

Skráðu upplýsingarnar sem þú finnur í áatatöl og fjölskylduskýrslur.

Gerðu skrá yfir gagnasafnið (skráðu í athugasemdardálkinn á eyðublöðunum eða í ættfræðiforritinu). Þannig getur þú vitað hvaðan upplýsingaheimildir fengust.

Hluti 3. Fáðu upplýsingar hjá ættingjum  

Gerðu skrá yfir aðra ættingja og ættarheimildir sem þeir eiga.

Hafðu samband við ættingjana – farðu í heimsókn til þeirra, hringdu í þá eða sendu þeim tölvupóst.

Gleymdu ekki að spyrja sérstaklega um þær upplýsingar sem þú þarft. (Dæmi: „Veistu þú hvenær Jóna frænka fæddist?“)

Skráðu upplýsingarnar í áatöl og fjölskylduskýrslur.

Skráðu nöfn þeirra ættingja sem veita þér upplýsingar í athugasemdadálkinn.

Hamingjuóskir – þú hefur nú útfyllt fjölskylduskýrslur og áatöl með upplýsingum frá fjölskyldu og ættmennum. Nú getur þú leitað upplýsinga í öðrum heimildum.

Hluti 4. Veldu fjölskyldu eða ættingja sem þú vilt fræðast frekar um.

Hugaðu að þeim upplýsingum sem vantar á áatali og fjölskylduskýrslum.

Veldu fjölskyldu eða ættingja þar sem upplýsingar eru ófullnægjandi.

Byrjaðu á fyrsta ættlið frá þér og haltu svo áfram koll af kolli. Yfirleitt er auðveldara að finna upplýsingar um fjölskyldumeðlim eða ættingja sem fæðst hefur sem næst okkar tíma.

Hluti 5. Gaktu úr skugga um hvort einhver annar hafi þegar orðið sér úti um upplýsingarnar sem þig vantar  

Ath.: Algeng mistök er að vísa einungis í eftirnafn, jafnvel þótt ekki sé alveg víst hvort viðkomandi sé ættingi.

Farðu á www.familysearch.org og leitaðu að nöfnum í Search for Ancestor. Þannig munt þú leita í tölvugagnasafni sem er á alneti í FamilySearch. Í gagnasafninu eru ættfræðiupplýsingar sem aðrir hafa skráð þar.

Leitaðu að útgefnum ættfræðiheimildum.

Leitaðu að nöfnum í Family History Library Catalog, Surname Search á alnetinu í FamilySearch.

Leitarskrá sýnir ættfræðiheimildir í gagnasafni þar sem nafnið kemur fyrir.

Þú getur gert ráðstafanir til að skoða mörg heimildarskjöl í ættfræðisafni á heimasvæði þínu. Leitaðu að frekari útgefnum ættfræðiheimildum í tengingunni Web Sites eða í opinberum skjalasöfnum og heimildarritum. Ef ættfræðiheimildir innihalda ekki nægilegar upplýsingar um fjölskyldu, getur þú leitað heimildaskjala á heimasvæði hins dána ættingja.

Hluti 6. Leitaðu að heimildaskjölum til að afla upplýsinga um einhvern ættingja þinn  

Nýttu þér Research Guidance (rannsóknarleiðarvísinn) á vefsíðunni www.familysearch.org. Research Guidance hjálpar þér að finna afrituð heimildargögn, t.d. manntöl og fæðingarvottorð, byggt á upplýsingum um hvar viðkoamandi átti heima, hvenær hann fæddist, giftist eða lést. Þú skráir heimastað og ár og Research Guidance kemur með skrá yfir forgangsröðun frekari leitar.

Þú getur hlaðið niður gögnum og prentað eyðublöð og leiðarvísa þér til hjálpar. Fjölda eyðublaða og leiðarvísa er að finna í tengingunni Research Helps sem hægt er að hlaða niður endurgjaldslaust. Eyðublöðin gera þér kleift að skipuleggja, skrá og greina rannsóknir þínar.