
Öldungur Erich W. Kopischke var kallaður sem meðlimur í fyrstu sveit hinna Sjötíu, 31. mars 2007, þá 50 ára. Áður hafði hann þjónað sem meðlimur í þriðju sveit hinna Sjötíu og sem svæðishafi. Sem svæðishafi þjónaði hann sem annar ráðgjafi í þáverandi forsætisráði Mið-Evrópusvæðisins. Þegar hann hafði verið kallaður sem aðalvaldhafi, þjónaði hann sem fyrsti ráðgjafi í forsætisráði Evrópusvæðisins. Hann þjónar nú sem forseti Evrópusvæðisins.
Öldungur Kopischke þjónaði í trúboði er hann var ungur maður í Munchen-trúboðinu í Þýskalandi. Árið 2003 var hann kallaður til að vera í forsæti Berlínartrúboðsins í Þýskalandi, sem þá tilheyrði landsvæði vesturþýska lýðveldisins, líkt og Vestur-Berlín. Fyrir þá köllun hafði hann þjónað í fjölmörgum kirkjuembættum, þar á meðal sem stikuforseti, umdæmisforseti, meðlimur í háráði, greinarforseti og ráðgjafi í tveimur biskupsráðum.
Öldungur Kopischke aflaði sér menntunar og námsgráðu í viðskiptum. Hann var sjálfstæður verðbréfamiðlari og síðar framkvæmdastjóri alþjóðlegs tryggingafyrirtækis í Þýskalandi í tíu ár. Allan þann tíma starfaði hann við Fræðslustofnun kirkjunnar, þar sem hann varð framkvæmdastjóri Mið-Evrópusvæðisins, uns hann var kallaður sem trúboðsforseti. Þegar hann var kallaður sem aðalvaldhafi, starfaði hann sem samræmingarstjóri Trúarskólans í Frankfurt, Þýskalandi.
Erich Kopischke fæddist í Elmshorn, Þýskalandi, 20. október 1956, hjónunum Kurt E. og Helgu Kopischke. Foreldrar hans voru trúfastir trúskiptingar sem bjuggu í Austur-Þýskalandi. Stuttu eftir að öldungur Kopischke fæddist, flýðu þau á undraverðan hátt til Vestur-Þýskalands.
Öldungur Kopischke giftist Christiane Glück í Bern-musterinu í Sviss árið 1978. Þau eiga saman sjö börn, tvær stúlkur og fimm drengi, þar á meðal tvíburadrengi. Þau eiga fjögur barnabörn. Fjölskyldan býr í Usingen, Þýskalandi.
Öldungur og systir Kopischke hafa unun af því að verja tíma með börnum sínum og barnabörnum; einkum við útiveru í náttúrunni, til að mynda við göngur, skíðaferðir, sundferðir og hjólreiðar.